Guðjón Valur í úrslit annað árið í röð 30. maí 2015 14:44 Guðjón Valur fagnar hér einu af 5 mörkum sínum í leiknum. vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Barcelona unnu sannfærandi sigur á Kielce, 33-28, í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þetta er annað árið í röð sem Guðjón Valur leikur til úrslita í Meistaradeildinni. Barcelona hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en aldrei var langt í pólsku meistarana. Varnarleikur Barcelona var gríðarlega sterkur og leikmenn Barcelona voru duglegir við að sækja hratt á Kielce þegar liðið vann boltann. Staðan í hálfleik var 16-14 fyrir Barcelona. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og átti mikinn þátt í sóknaruppbyggingu Börsunga. Kannski engin furða þar sem hraður sóknarleikur hentar landsliðsfyrirliðanum einstaklega vel. Barcelona virtist ætla að stinga af í upphafi síðari hálfleiks. Liðið skoraði þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks, komst í 19-14, áður en Kielce vaknaði til lífsins. Næstu fjögur mörk voru pólsk og þau komi öll á tveimur mínútum. Værukærð í sóknarleik Barcelona varð til þess að Kielce komst aftur inn í leikinn. Spánarmeistararnir köstuðu boltanum frá sér trekk í trekk. Xavier Pascual, þjálfari Barcelona, tók leikhlé í þeirri tilraun að vekja sína menn til lífsins. Daniel Saric kom í mark Barcelona um miðjan síðari hálfleik og hann lagði grunninn að sigri Barcelona í þessum leik. Svo fór að Barcelona vann 5 marka sigur, 33-28, og Guðjón Valur skoraði 5 mörk. Guðjón Valur er því kominn í úrslit Meistaradeildar Evrópu með Barcelona en það kemur í ljós síðar í dag hvort mótherjinn verður Kiel eða Veszprem.
Handbolti Mest lesið „Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Sport Eins og kleina þegar hún upplifði martröð spyrilsins Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Allt jafnt í Fulham og bæði lið bíða enn eftir fyrsta sigri Enski boltinn Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Onana með í dag en Man. Utd að landa markverði Enski boltinn Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM Körfubolti Uppgjörið: KA - Fram 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Íslenski boltinn Arnar og Bjarki unnu golfmót Golf Uppgjörið: FH - ÍBV 1-1 | Alvöru dramatík í uppbótartíma Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ágúst strax kominn með titil hjá Álaborg Íslenska tríóið grátlega nálægt titli Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Stjarnan er meistari meistaranna „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Með krabbamein í brjósti en hættir ekki að spila „Upplifi þetta mál sem fjölskylduharmleik“ Misstu Egypta fram úr sér í seinni hálfleik ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sjá meira