Reikningarnir til Ölgerðarinnar komu frá Vert Bjarki Ármannsson skrifar 11. maí 2015 23:27 Reikningarnir, sem Ölgerðin segir tilhæfislausa, komu frá Vert markaðsstofu. Vísir/Getty
Eigendur Vert markaðsstofu segjast miður sín vegna meintra fjársvika starfsmanns Ölgerðarinnar sem urðu til þess að starfsmanninum var sagt upp störfum í dag. Vísir greindi frá því fyrr í kvöld að Ölgerðin hefði kært starfsmanninn, sem var einn vörumerkjastjóra fyrirtækisins, ásamt starfsmanni auglýsingastofu fyrir að gefa út tilhæfislausa reikninga á Ölgerðina. Í tilkynningu sem eigendur Vert sendu frá sér eftir að fréttir birtust um málið kemur fram að reikningarnir komu frá Vert. Þeir segja að verklag við meðhöndlun reikninganna hafi verið „ámælisvert” en að það hafi aldrei verið ásetningurinn að valda Ölgerðinni fjártjóni. Jafnframt segja þeir að bókhald Verts hafi verið opnað til að upplýsa málið. Tilkynning Verts í heild sinni er birt hér að neðan.Einum af vörumerkjastjórum Ölgerðarinnar var í dag vikið frá störfum út af reikningum sem hann óskaði eftir og komu frá Vert. Við erum gersamlega miður okkar vegna þessa máls. Um er ræða reikninga sem mynduðu inneign af hálfu Ölgerðarinnar í þjónustu hjá Vert en fyrirtækið hefur um árabil verið okkar stærsti viðskiptavinur. Viðkomandi vörumerkjastjóri hugðist nota þessa reikninga til að innheimta markaðsstuðning frá erlendum birgjum. Aldrei var ásetningur af okkar hálfu að valda Ölgerðinni fjártjóni. Samanlögð upphæðin sem um ræðir var brot af heildarviðskiptum okkar við Ölgerðina. Verklag við meðhöndlun þessara reikninga var ámælisvert. Við höfum beðið Ölgerðina velvirðingar vegna þessa. Við höfum jafnframt opnað bókhald okkar upp á gátt til að hægt sé að upplýsa málið.Sú skoðun mun staðfesta að aldrei var um neinn ásetning að ræða að taka þátt í ólögmætu athæfi viðkomandi starfsmanns. Þetta leiðinlega mál skrifast á gáleysi í samskiptum okkar við hann. Við vonumst til að rannsóknin sem farin er af stað gangi greiðlega svo komast megi sem fyrst til botns í þessu máli.Fyrir hönd Vert markaðsstofu,Hörður Harðarson, eigandi Stefán Gunnarsson, eigandi og framkvæmdastjóri.
Tengdar fréttir Ölgerðin kærir tvo fyrir meint fjársvik: „Þetta eru töluverðar fjárhæðir“ Vörumerkjastjóri Ölgerðarinnar tekinn til yfirheyrslu og starfsmaður auglýsingastofu. 11. maí 2015 20:52 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Ölgerðin kærir tvo fyrir meint fjársvik: „Þetta eru töluverðar fjárhæðir“ Vörumerkjastjóri Ölgerðarinnar tekinn til yfirheyrslu og starfsmaður auglýsingastofu. 11. maí 2015 20:52