Formúla 1

Alonso: Held við náum í stig í Mónakó

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Alonso ætlar að ná í stig í Mónakó.
Alonso ætlar að ná í stig í Mónakó. Vísir/Getty
McLaren mun ná í sín fyrstu stig í ár í keppninni í Mónakó um helgina ef marka má orð annars ökumanna liðsins, Fernando Alonso.

Alonso neyddist til að hætta keppni í síðustu keppni þegar bremsurnar á bíl Spánverjans ofhitnuðu. Alonso hefði endað níundi ef marka má útreikninga McLaren liðsins.

Jenson Button, liðsfélagi Alonso lýsti MP4-30, McLaren bíl sínum sem þeim ógnvænlegasta sem hann hefur ekið.

„Ég held að við náum í stig í Mónakó,“ sagði Alonso sjálfsöruggur í viðtali við Sky Sports.

Alonso telur að McLaren fari að berjast um eitt eða tvö stig í komandi keppnum. Liðið mun svo fara að ná stöðugum framförum. Austurríski kappaksturinn verður vendipunktur því þá mun liðið taka stórt framfarastökk samkvæmt Alonso.

„Í næstu tveimur til þremur keppnum munum við vera á mörkum þess að ná tíunda sæti. Markmiðið er svo að komast í sjöunda til áttunda sæti frá og með austurríska kappakstrinum. Það er markmiðið,“ sagði Alonso.

„Við þurfum að fara að nálgast verðlaunasæti. Ég er mjög bjartsýnn,“ bætti Alonso við að lokum.


Tengdar fréttir

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Eldsneytisáfylling snýr aftur í Formúlu 1

Uppkast af stefnubreytingu hefur verið samþykkt af skipulagshópi Formúlu 1 liða á fundi í gær. Meðal breytinga er að eldsneytisáfyllingar snúa aftur.

Bílskúrinn: Barátta í Barein

Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel.

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Nico Rosberg vann loksins keppni á tímabilinu. Hann hefur þá minnkað muninn í Lewis Hamilton niður í 20 stig. Liðsfélagarnir hjá Mercedes virðast ætla að berjast af hörku en sanngirni í ár, að minnsta kosti hingað til.

Nico Rosberg á ráspól í Barselóna

Nico Rosberg náði ráspól í Barselóna, liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Vettel: Við reyndum allt sem við gátum

Nico Rosberg á Mercedes vann keppni dagsins eftir spennandi keppni í Barselóna. Honum var aldrei ógnað af alvöru. Hver sagði hvað eftir keppni dagsins?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×