Formúla 1

Vettel: Við reyndum allt sem við gátum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg, Vettel og Hamilton börðust af hörku á stórum köflum í dag.
Rosberg, Vettel og Hamilton börðust af hörku á stórum köflum í dag. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes vann keppni dagsins eftir spennandi keppni í Barselóna. Honum var aldrei ógnað af alvöru. Hver sagði hvað eftir keppni dagsins?

„Gott að geta fylgt ráspól eftir með því að vinna keppnina. Loksins náði ég góðri ræsingu, þær hafa verið erfiðar en það kom loksins í dag,“ sagði Rosberg á pallinum.

„Ég er bara að njóta dagsins og kvöldsins og svo mun ég snúa athyglinni að næstu keppni en fyrst ætla ég að njóta,“ bætti Rosberg við.

„Ég átt slaka ræsingu sem skóp erfiða keppni, mikið spól. Gott að komast aftur í annað sæti fyrir liðið, Nico átti frábæran dag og ég vil óska honum til hamingju,“ sagði Lewis Hamilton á verðlaunapallinum.

„Við reyndum allt sem við gátum, hugsanlega hefðum við getað náð öðru sæti en það er samt erfitt að segja. Hugsanlega með annarri keppnisáætlun hefðum við verið nær en sennilega ekki. Sem ökumaður verður maður alltaf að vera að kvarta yfir einhverju, við verðum að halda okkur á tánum,“ sagði Sebastian Vettel sem varð í þriðja sæti á Ferrari.

„Þetta er eins og við höfum báðum bílum í fyrsta sæti í endamark, af því að Nico ók óaðfinnanlega en Lewis ók einstaklega vel líka, hann kom til baka eftir erfiða ræsingu og slakt þjónusutuhlé,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

Enn einn afleiddur dagur hjá McLaren í dag. Button tókst þó að klára keppnina, annað en Alonso.Vísir/Getty
„Það var ógnvekjandi að keyra bílinn í dag, í hvert skipti sem þú snerti bensíngjöfina byrjaði bíllinn að spóla, bæði í hægum og hröðum beygjum. Eftir daginn í dag á ég ekki von á stigum í Mónakó, ekkert frekar en það sem eftir er af tímabilinu. Vonandi var þessi dagur algjör undantekning,“ sagði Jenson Button hjá McLaren eftir erfiða keppni.

„Við þurfum ekki að hugsa um eigin óheppni, við verðum að horfa fram á við. Tíminn var góður framan af og svo óheppilegt atvik með liðsfélaga mínum. Hann braut afturvænginn minn, það eru keppnir fram undan til að hlakka til,“ sagði Pastor Maldonado.

„Þetta var svolítið eins og endurtekið efni fyrir mig, ég var að berjast við að halda einum af þeim rauðu fyrir aftan mig. Við náðum framförum þessa helgi, við vorum ekki með stórar uppfærslur en svo virðist sem enginn hafi komið með neinar töfralausnir. Ég hlakka mikið til keppnanna framundan. Mónakó er reyndar ekki okkar sterkasta braut,“ sagði Valtteri Bottas eftir keppnina.


Tengdar fréttir

Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei

Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði.

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Spáni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar. Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni en Sebastian Vettel á Ferrari varð þá annar.

Hamilton: Ég hafði ekki hraðann

Nico Rosberg náði ráspól fyrir spænska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Rosberg átti í spennandi baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg á ráspól í Barselóna

Nico Rosberg náði ráspól í Barselóna, liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Nico Rosberg vann á Spáni

Nico Rosberg á Mercedes vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í dag. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð í öðru sæti og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×