Formúla 1

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes fagnaði með hefðbundinni hópmynd, Hamilton virðist þó vilja vera einhversstaðar annarsstaðar.
Mercedes fagnaði með hefðbundinni hópmynd, Hamilton virðist þó vilja vera einhversstaðar annarsstaðar. Vísir/Getty
Nico Rosberg vann loksins keppni á tímabilinu. Hann hefur þá minnkað muninn í Lewis Hamilton niður í 20 stig. Liðsfélagarnir hjá Mercedes virðast ætla að berjast af hörku en sanngirni í ár, að minnsta kosti hingað til.

Hvað olli bremsubilun Fernando Alonso, hver var maður keppninnar og hvers vegna hætti Pastor Maldonado keppni í fjórða skipti í fimm keppnum? Allt þetta og fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.

McLaren kom í nýjum litum til Spánar en ekki virtist bíllinn betri á neinn annan veg.Vísir/Getty
Bremsubilun Alonso

Fernando Alonso lenti í því óskemmtilega atviki að þurfa að hætta keppni. Bremsurnar á McLaren bíl hans ofhitnuðu. Fyrst ofhitnuðu afturbremsurnar. Alonso brá þá á það ráð að færa hæutföllin framar og bremsa meira með frambremsunum sem þá ofhitnuðu í kjölfarið.

Alonso kom inn til að taka þjónustuhlé en náði ekki að stöðva innan rammans heldur rann bremsulaus áfram nokkra metra fram hjá þjónustuliði sínu.

Maðurinn á tjakknum sem lyftir framhluta bílsins var afar svalur á því og gekk til hliðar þegar hann sá bílinn koma aðvífandi. Hann er afar reynslumikill. Hann hefur sinnt starfinu í um 13 ár og sá snemma að Alonso var ekki líklegur til að ná að stöðva.

Ástæðan fyrir því að afturbremsurnar hitnuðu um of, var sú að filma af skyggni ökumanns, hugsanlega Alonso sjálfs festist í loftgati við bremsurnar. Ökumenn geta rifið filmur af skyggninu til að sjá betur út, slík filma olli ofhitnun afturbremsanna. Sú ofhitnun var svo orsök þess að frambremsurnar hættu að virka.

Rosberg virtist gríðarlega létt eftir keppnina og fagnaði gríðarlega.Vísir/Getty
Maður keppninnar

Aldrei þessu vant er enginn ökumaður sem á heiðurinn klárlega skilið umfram aðra. Hins vegar verður að telja að eftir góða ræsingu og öruggan leiðangur frá rásmarki til endamarks í fyrsta sæti eigi Nico Rosberg á Mercedes heiðurinn skilið.

Rosberg þurfti virkilega á 25 stigum að halda, hann var eins og sigraður maður fyrir helgina á Spáni. Nú er annað að sjá til hans og létt var yfir honum eftir keppni.

Vonandi verður þetta til þess að keppnin á milli Hamilton og Rosberg herðist og við förum að sjá á þeim klærnar. Þess má geta að Rosberg var fljótastur á fyrsta degi æfinga eftir keppnina í Barselóna. Æfingarnar hófust á þriðjudaginn.

Ef vel er að gáð má sjá að hliðarplötuna vantar á bíl Maldonado.Vísir/Getty
Pastor Maldonado

Greyið maðurinn. Líklega er ekki hægt að segja meira um stöðu hans í dag annað en að hann er óheppnasti ökumaður sem sögur fara af.

Hann var á góðri leið með að ná loksins í stig. Hann er enn stigalaus á tímabilinu. Liðsfélagi hans hjá Lotus, Romain Grosjean missti af einni beygju og var að reyna að koma sér aftur inn í keppnina þegar Lotus mennirnir lentu í samstuði.

Samstuð það veikti verulega afturvænginn á bíl Maldonado. Það kom svo að því að Maldonado notaði DRS búnaðinn. Þegar hann lokaði honum aftur brotnaði önnur hliðarplatan á afturvængnum.

Í næsta þjónustuhléi refi þjónustulið Lotus plötuna af og var því lítill stuðningur við afturvænginn. En áfram skrölti Maldonado þó. Hann þurfti hins vegar að hætta keppni skömmu síðar enda ekki öruggt að halda áfram, vængurinn svignaði ískyggilega á miklum hraða.

Tapaði Ferrari uppfærslukeppninni eða var keppnisáætlun liðsins bara léleg?Vísir/Getty
Hver vann uppfærslukeppnina?

Mercedes virðist hafa unnið við fyrstu sýn. Rosberg hélt því að minnsta kosti fram á blaðamannafundi eftir keppnina. Þeir virðast hafa stungið Ferrari af.

Samkvæmt lauslegum útreikningum blaðamanns hefði Sebastian Vettel á Ferrari þó átt möguleika á að halda Hamilton fyrir aftan sig ef Vettel hefði tekið þjónustuhlé á sama tíma og Hamilton.

Eitt er víst að Sauber virðist hafa tapað í þróunarstríðinu. Með engar uppfærslur að heita má hætti liðið að ná í stig. Spánarkeppnin var sú versta fyrir Sauber á tímabilinu.

Manor er enn stigalaust en stefnir á að koma með nýjan bíl innan skamms.Vísir/Getty
Hvernig er staðan af fimm keppnum loknum?

Lewis Hamilton leiðir heimsmeistarakeppni ökumanna með 111 stig. Rosberg er 20 stigum á eftir Hamilton. Vettel er svo 11 stigum á eftir Rosberg og Kimi Raikkonen er 28 stigum á eftir Vettel.

Mestu máli skiptir að Rosberg gæti nú tekið fram úr Hamilton í einni keppni sem Rosberg ynni ef Hamilton fengi ekki stig. Það gæti því allt gerst í Mónakó.

Stigalausir eru Manor ökumennirnir Will Stevens og Roberto Merhi, McLaren ökumennirnir Jenson Button og Fernando Alonso og hinn óheppni Pastor Maldonado á Lotus.

Í heimsmeistarakeppni bílasmiða er Mercedes efst með 202 stig, Ferrari er 70 stigum á eftir og Williams er 51 stigi á eftir Ferrari.


Tengdar fréttir

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Mercedes menn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Spáni. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar. Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni en Sebastian Vettel á Ferrari varð þá annar.

Hamilton: Ég hafði ekki hraðann

Nico Rosberg náði ráspól fyrir spænska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Rosberg átti í spennandi baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Nico Rosberg á ráspól í Barselóna

Nico Rosberg náði ráspól í Barselóna, liðsfélagi hans hjá Mercedes, Lewis Hamilton varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Nico Rosberg vann á Spáni

Nico Rosberg á Mercedes vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í dag. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð í öðru sæti og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Vettel: Við reyndum allt sem við gátum

Nico Rosberg á Mercedes vann keppni dagsins eftir spennandi keppni í Barselóna. Honum var aldrei ógnað af alvöru. Hver sagði hvað eftir keppni dagsins?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×