Formúla 1

Eldsneytisáfylling snýr aftur í Formúlu 1

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Menn eru búnir að bíða síðan 2009 eftir að fá að fyll´ann í miðri keppni.
Menn eru búnir að bíða síðan 2009 eftir að fá að fyll´ann í miðri keppni. Vísir/Getty
Uppkast af stefnubreytingu hefur verið samþykkt af skipulagshópi Formúlu 1 liða á fundi í gær. Meðal breytinga er að eldsneytisáfyllingar snúa aftur.

Markmið fundarins var að gera Formúlu 1 enn meira spennandi með því að auka sjónarspilið. Allt fyrir sem minnstan pening. Breytingarnar munu fyrst hafa áhrif árið 2017.

Hugsanlega verður opnað fyrir þann möguleika að minni liðin geti keypt bíla af þeim stærri. Sá kostur er að öllum líkindum ódýrari lausn en að öll liðin hanni eigin bíl með tilheyrandi kostnaði.

Stærsta fréttin af fundinum er þó sennilega sú að eldsneytisáfyllingar verða aftur heimilar í þjónusuthléum.

Margar aðrar breytingar eru á borðinu, svo sem hærri hámarkssnúningar véla, sem myndu gera bílana „á milli fimm og sex sekúndum hraðari á hring,“ samkvæmt FIA (Alþjóða akstursíþrótta sambandinu). Á fundinum voru Bernie Ecclestone og fulltrúar FIA, Ferrari, Mercedes, McLaren, Red Bull, Williams og Force India.

Bílarnir eiga að líkjast meira þessum svakalega Tyrrel-Ford sem Jackie Stewart varð heimsmeistari á árið 1973.Vísir/Getty
Nýjar loftflæðisreglur gætu orðið veruleiki ásamt breiðari dekkjum og léttari bílum allt gert til að auka sjónarspilið og hraða bílanna. Bílarnir eiga að vera árásargjarnari í útliti.

Stærstu breytingarnar bíða til ársins 2017. Ein breyting tekur þó gildi strax á næsta ári. Sú breyting snýr að dekkjagerðum.

Liðin geta þá valið hvaða dekkjagerðir þau vilja nota í hverri keppni, liðin velja þá tvær af fjórum tegundum til að mæta með í hverja keppni. Tegundirnar eru: ofur mjúk dekk, mjúk dekk, milli hörð dekk og hörð dekk.

Mýkri dekkin veita meira grip en endanst ekki eins lengi. Þessi breyting gæti því opnað á aukinn fjölbreytileika í keppnisáætlunum liða. Núverandi fyrirkomilag er þannig að Pirelli, dekkjaframleiðandinn velur þær tvær tegundir sem hann telur henta best á hverri braut.

Tillögu um að hækka heimilaðar vélar á yfirstandandi tímabili úr fjórum í fimm, var hafnað.


Tengdar fréttir

Byltingunni frestað til 2017

Umfangsmiklum reglubreytingum hefur verið frestað til 2017 eftir atkvæðagreiðslu á fundi skipulagsnefndar Formúlu 1 í dag.

Nýtt útlit hjá McLaren

McLaren liðið hefur birt myndir af nýju útliti Formúlu 1 bíl sínum. Liðið vonar að nýja útlitið veiti því meðbyrinn sem það vantar.

Bílskúrinn: Baráttan í Barselóna

Nico Rosberg vann loksins keppni á tímabilinu. Hann hefur þá minnkað muninn í Lewis Hamilton niður í 20 stig. Liðsfélagarnir hjá Mercedes virðast ætla að berjast af hörku en sanngirni í ár, að minnsta kosti hingað til.

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Nico Rosberg vann á Spáni

Nico Rosberg á Mercedes vann sína fyrstu keppni á tímabilinu í dag. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð í öðru sæti og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji.

Vettel: Við reyndum allt sem við gátum

Nico Rosberg á Mercedes vann keppni dagsins eftir spennandi keppni í Barselóna. Honum var aldrei ógnað af alvöru. Hver sagði hvað eftir keppni dagsins?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×