Gísli Marteinn hetjan í nýjum tölvuleik Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 8. maí 2015 11:56 Friðrik Steinn hjólar hjálmlaus líkt og Gísli Marteinn.
Nýr leikur hefur vakið athygli í morgun en hann gengur alfarið út á það að setja mismunandi gerðir af hjálmum á fyrrum borgarfulltrúann og sjónvarpsstjörnuna Gísla Martein Baldursson. Umræða um notkun hjálma fór af stað í vikunni eftir að MBL sló því upp í fyrirsögn að borgarfulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson hefði verið hjálmlaus í hjólað í skólann. Gísli Marteinn steig þá fram í viðtali við Pressuna þar sem hann sagði meðal annars að það fælist mun minni hætta í því að hjóla hjálmlaus heldur en að keyra hjálmlaus. Í viðtalinu kom einnig fram að ökumenn hafi hrópað að honum ókvæðisorð þar sem hann hjólar um götur borgarinnar hjálmlaus. Friðrik Steinn Friðriksson, hönnuður, bjó til leikinn en hann fór í loftið í morgun. „Í staðinn fyrir að kalla á Gísla úti á götu getur það farið í leikinn og sett hjálm á hann í tölvunni,“ útskýrir hann. Hann segir að það megi kalla leikinn ádeilu á það að fullorðið fólk reyni að þvinga annað fullorðið fólk til að vera með hjálma. „Sjálfur hjóla ég hjálmlaus og mér finnst fólk geta gert það sem það vill.“Friðrik er með MFA gráðu í upplifunarhönnun frá Konstfack í Stokkhólmi og því má segja að námið hafi nýst vel við gerð leikjarins. Sú upplifun að fá að tylla hjálmi á höfuð Gísla Marteins gæti friðað margan manninn telur Friðrik. „Fólk getur bara farið í dress up leik og sett hjálm á Gísla.“ Leikinn má spila hér á síðunni Friðrik Steinn Friðriksson.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Sjá meira