Viðskipti innlent

Landsbankinn áfram í Leifsstöð: Uppsagnir starfsmanna dregnar til baka

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Pjetur
Isavia og Landsbankinn hafa komist að samkomulagi um að Landsbankinn sinni áfram fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar til útboð hefur farið fram en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Um leið hafa allar uppsagnir starfsmanna verið dregnar til baka en ákvörðun um uppsögn 12 starfsmanna flugstöðinni frá og með 1. febrúar sl.,  var varúðarráðstöfun af hálfu bankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar.

Landsbankinn hefur rekið afgreiðslu í Leifsstöð allt frá opnun og hyggst taka þátt í útboði Isavia um fjármálaþjónustu þegar það fer fram.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×