Vaxandi lægð gengur yfir landið Stefán Árni Pálsson skrifar 10. apríl 2015 22:21 Hvasst verður norðaustan og fer vindur heldur vaxandi. Vísir/Pjetur
Lægðin sem gengur nú yfir landið er enn vaxandi og er hún heldur vestar undan Suðurlandi, en áður var ætlað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Fyrir vikið verður víða vestan til á landinu hríðarmugga fram á nóttina og skafrenningur, einkum á fjallvegum. Hvasst verður norðaustan og fer vindur heldur vaxandi. Austanlands lagast veður mikið snemma í nótt og síðar meir norðaustanlands. Vestan til á Norðurlandi er hins vegar reiknað með stórhríð í fyrramálið og vindhraða upp á 15 til 20 metra á sekúndu. Eins á Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum og nær suður í Dali og Borgarfjörð. Færð á vegum er ekki góð en á Suðurlandi er víða skafrenningur, hálka eða hálkublettir. Snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum og óveður og hálkublettir á Kjalarnesi. Þæfingsfærð er á Mosfellsheiði og ófært um Kjósaskarð. Snjóþekja og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og á Bröttubrekku. Þungfært er á Fróðárheiði. Snjóþekja er á Mikladal, Hálfdán og á Kleifaheiði. Þungfært og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði en Þæfingsfærð og skafrenningur á Þröskuldum. Ófært er um Klettsháls. Hálkublettir og skafrenningur er á Þverárfjalli, Vatnskarði og Stórhríð og hálkublettir á Siglufjarðarvegi. Þæfingsfærð og stórhríð er á Öxnadalsheiði og hálka og óveður á Mývatnsöræfum. Snjóþekja og éljagangur er á Víkurskarði og þæfingur og stórhríð á Hófaskarði. Á Austurlandi er ófært og stórhríð á Fjarðarheiði, Oddsskarði og um Vatnsskarð eystra. Þungfært stórhríð er á Jökuldal. Snjókoma og þæfingsfærð er á Fagradal. Þæfingsfærð og stórhríð er frá Höfn í Hvalnes.
Veður Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Sjá meira