Illugi mættur aftur til leiks Jakob Bjarnar skrifar 23. mars 2015 11:18 Illugi: „Einhver hlýtur að hafa verið að bera út óhróður um Illuga J því einn góðan veðurdag var honum hent út af Facebook án þess að hafa gert nokkuð af sér.“ visir/valli
Facebookreikningi Illuga Jökulssonar, rithöfundar, blaðamanns og samfélagsrýnis, var óvænt lokað um helgina. Þetta kom flestum í opna skjöldu því þó Illugi sé harður í horn að taka þegar hann gagnrýnir valdhafa, einkum þó Sjálfstæðisflokkinn, er hann prúður til orðs og æðis. Illugi er líklega einhver virkasti penninn á Facebook, hann er fyrir löngu búinn að fylla vinakvóta sinn, fimm þúsund vinir eru á skrá, og brugðust margir illa við þegar það spurðist að Facebook væri búið að loka reikningi Illuga án skýringa. Ísak Harðarson gekk í það að stofna sérstakan hóp á Facebook þar sem skorað var á þar til bæra stjórnendur á Facebook að endurskoða þessa óskiljanlegu ákvörðun. Nú í morgun var svo reikningurinn opnaður. Engar skýringar á þessari lokun, en skilaboð sem Illugi fékk voru á þá leið að hann var beðinn velvirðingar á óþægindunum. „Einhver hlýtur að hafa verið að bera út óhróður um Illuga J því einn góðan veðurdag var honum hent út af Facebook án þess að hafa gert nokkuð af sér.“ Svo hljóðar status Illuga eftir endurkomuna og eru margir til að fagna því að hann sé mættur til leiks á ný. Enn er sem sagt ekki vitað hvað varð til að Illuga var úthýst en margir hallast að því, sem Illugi reyndar gefur í skyn, að pólitískir andskotar hans hafi lagst á eitt og sent inn kvörtun vegna skrifa hans sem þá urðu til að gripið var til þessa gerræðis.Innlegg frá Illugi Jökulsson.
Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Lífið Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Lífið Fleiri fréttir Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Sjá meira