Samningafundur í dag gæti orðið viðburðaríkur Heimir Már Pétursson skrifar 10. mars 2015 12:15
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir Samtök atvinnulífsins ekki hafa komið til móts við kröfur sambandsins hingað til en boðað er til samningafundar hjá Ríkissátasemjara síðdegis. Forystumenn Starfsgreinasambandsins hafa sagt að það ráðist öðru hvoru meginn við páska hvort boðað verði til verkfallsaðgerða. Mikið ber í milli hjá Starfsgreinasambandinu og Samtökum atvinnulífsins varðandi launamálin, en kröfur Starfsgreinasambandsins eru að lágmarkslaun verði orðin um 300 þúsund í lok samningstímans eftir þrjú ár. Samninganefndir mætast hjá Ríkissáttasemjara síðdegis en að auki hefur Starfsgreinasambandið boðað formenn allra þeirra 16 félaga sem standa að baki samninganefndinni til fundar til að undirstrika þungann í málinu. Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins er hæfilega bjartsýn á niðurstöðu fundarins seinna í dag. „Allir fundir eru þannig að þeir draga línuna í sandinn. Við vitum ekki hvað gerist í dag. Við höfum ekki fengið þau viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins sem við höfum óskað eftir. Ekki fengið nógu skýr svör,“ segir Drífa. Staðan verði því metin eftir samningafundinn í dag en auk þessa samningafundar sé verið að ræða við fulltrúa Samtaka atvinnulífsins um mál einstakra starfshópa í allan dag. Forystumenn innan Starfsgreinasambandsins hafa áður lýst því yfir að niðurstaða í samningaviðræðum þurfi að liggja fyrir öðru hvoru megin við páska, annars verði sett í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna hvort boða skuli til verkfallsaðgerða. „Það eiginlega stendur upp á Samtök atvinnulífsins. Þannig að ég veit það ekki en við erum að sjálfsögðu undirbúin undir ýmsar sviðsmyndir. En ákvörðun liggur ekki fyrir,“ segir Drífa.En miðað við reynsluna, sýnist þér það langt í milli að mikið þurfi að gerast í dag til að þið farið á beinu brautina við samningaborðið?„Það þarf að koma eitthvað frá Samtökum atvinnulífsins, já,“ svarar Drífa. Hins vegar megi vinna hratt ef Samtök atvinnulífsins komi til móts við kröfur Starfsgreinasambandsins. „Ef eitthvað fer að gerast þá náttúrlega gefum við okkur þann tíma sem til þarf, en til þess þarf eitthvað að fara að gerast,“ segir Drífa Snædal.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Sjá meira