"Kemur ekkert annað til greina en að Paul sé á lífi“ Jakob Bjarnar skrifar 10. mars 2015 15:27 Eiríkur er sannfærður um að sá Paul sem hann hitti, sé hinn eini sanni og hann vill skjóta loku fyrir að hann sé dauður.
Óljósar fregnir um að Bítillinn Ringó hafi staðfest þrálátan orðróm þess efnis að Paul McCartney sé löngu dauður, að hann hafi farist í bílsslysi og staðgengill, Billy nokkur Shears, hafi hlaupið í skarðið, hafa komið flatt uppá Bítlaaðdáendur. Þessar samsæriskenningar hafa lengi verið við lýði og skotið upp kollinum af og til. Fréttasíðurnar sem um ræðir geta reynst misjafnlega trúverðugar, en það breytir ekki því að orðrómurinn hefur fengið byr undir báða vængi að undanförnu. Og svo virðist sem Paul McCartney hafi fundið sig knúinn til að þræta fyrir það að vera allur, en sú frétt gæti reyndar verið afskaplega varasöm. Bítlaaðdáendur á Íslandi hafa fylgst forviða með þessum furðulega fréttaflutningi, ekki síst einn helsti Bítlaaðdáandi landsins, Eiríkur Einarsson tónlistarmaður. Þetta kemur honum sérílagi spánskt fyrir sjónir því Eiríkur hefur hitt Paul og verið í samskiptum við hann. „Ég var alveg viss um að þetta væri Paul, kom ekkert annað í hug. Að vísu þegar þú nefnir þetta þá man ég eftir því að þegar ég hitti hann og hann gekk í áttina til mín, að mér fannst hann eitthvað svo lítill á hæð, og ég hugsaði með sjálfum mér; Þetta er þá hann sjálfur í allri sinni mynd, hann er ekki stærri en þetta! En hann er í sjálfu sér ekkert lítill, um 1:80 á hæð og ég er náttúrulega 1,87 og virkaði því miklu stærri en hann,“ segir Eiríkur í samtali við Vísi. En, þrátt fyrir að fram hafi komið könnun á dögunum sem á að leiða það í ljós að trommarar séu greindari en aðrir hljóðfæraleikarar, þá leggur Eiríkur ekki mikinn trúnað á orð hans. Segir hann hafa verið helst til lengi í Gula kafbátnum, og eða að þetta sé einhver Liverpool-húmor.Skjámynd af netinu; miklar vangaveltur eru nú um það hvort Paul hafi farist í bílslysi árið 1966 og það nýjasta í því er að hafa Ringó fyrir því.„Það kemur ekkert annað til greina en að Paul sé enn á lífi og hafi verið alla tíð og líka þessi sem heimsótti okkur,“ segir Eiríkur. „Fyrir það fyrsta hefði aldrei verið hægt að finna einhvern look-alike með öllum þessum sömu eiginleikum og Paul hafði, örvhentur, sama söngröddin og þessi frábæri lagasmiður svo eitthvað sé nefnt. Þegar ég hitti hann var hann með alla sömu taktana og einkennin í öllu fasi og viðmóti, eins og ég þekkti hann. Og þá líka fyrir hin svo kallaða „dauða hans“ árið 1966. Fyrir mér var þetta eins og að hitta ævafornan vin sem maður gjörþekkti á allan hátt. Þannig að maður lét sér ekkert efast um það á nokkurn hátt um að þetta hafi verið hann.“
Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira