Löwen sló Kiel úr leik | Öruggt hjá Magdeburg og Füchse Berlin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2015 19:44 Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Löwen í kvöld. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen sló Þýskalandsmeistara Kiel út úr þýsku bikarkeppninni með þriggja marka sigri í kvöld, 29-26. Löwen er því komið í undanúrslit bikarkeppninnar ásamt Magdeburg og Füchse Berlin. Síðar í kvöld kemur það svo í ljós hvort Gummersbach eða Flensburg verði fjórða liðið í undanúrslitunum. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 15-14, Ljónunum í vil. Löwen byrjaði seinni hálfleikinn betur og náði mest fjögurra marka forystu, 20-16. Kiel svaraði með þremur mörkum á tæpri mínútu. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar jöfnuðu svo metin, fyrst í 20-20 og svo í 21-21. En Ljónin reyndust sterkari á lokasprettinum og unnu að lokum þriggja marka sigur, 29-26. Uwe Gensheimer og Bjarte Myrhol voru markahæstir í liði Löwen með sex mörk en Alexander Petersson og Kim Ekdahl du Rietz komu næstir með fimm mörk hvor. Þá átti Niklas Landin góðan leik í marki Ljónanna. Stefán Rafn Sigurmannsson var ekki á meðal markaskorara. Marko Vujin skoraði sjö mörk fyrir Kiel. Aron Pálmarsson komst ekki á blað en gaf tvær stoðsendingar. Lærisveinar Geirs Sveinssonar í Magdeburg hafa verið á frábæru skriði að undanförnu og þeir rúlluðu yfir Göppingen á heimavelli, 32-17. Eins og tölurnar bera með sér hafði Magdeburg mikla yfirburði í leiknum en staðan í hálfleik var 12-6, lærisveinum Geirs í vil. Austurríski hornamaðurinn Robert Weber var markahæstur í liði Magdeburg með 11 mörk. Matthias Musche kom næstur með átta mörk. Fyrr í kvöld vann Füchse Berlin öruggan tíu marka sigur, 19-29, á Leipzig á útivelli. Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans eiga því möguleika á að verja bikarmeistaratitilinn sem þeir unnu í fyrra.
Handbolti Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira