Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Akureyri 27-26 | Árni gerði engin mistök Ingvi Þór Sæmundsson að Varmá skrifar 15. febrúar 2015 12:47 Úr leik liðanna í dag. vísir/stefán
Árni Bragi Eyjólfsson var hetja Aftureldingar þegar liðið lagði Akureyri að velli, 27-26, í miklum spennuleik í N1-höllinni í Mosfellsbæ í 19. umferð Olís-deildar karla í dag. Lokamínútur leiksins voru gríðarlega spennandi. Gestirnir náðu þrívegis forystunni á síðustu fimm mínútum leiksins en tókst þrátt fyrir það ekki að halda inn stig. Ingimundur Ingimundarson kom Akureyri yfir, 25-26, þegar tvær mínútur en Örn Ingi Bjarkason jafnaði að bragi með sínu 10. marki í leiknum. Akureyringar töpuðu boltanum klaufalega í næstu sókn og í kjölfarið fékk Sverre Jakobsson 2ja mínútna brottvísun. Heimamenn opnuðu vinstra hornið fyrir Kristin Bjarkason en Hreiðar Levý Guðmundsson sá við honum. Mosfellingar héldu þó boltanum og opnuðu því næst hægra hornið fyrir Árna Braga Eyjólfsson. Honum urðu ekki á nein mistök, setti boltann í stöng og inn og tryggði sínum mönnum stigin tvö. Akureyringum tókst ekki að opna vörn Aftureldingar á þeim sekúndum sem eftir voru af leiknum og heimamenn fögnuðu sínum þriðja deildarsigri í jafn mörgum leikjum eftir vetrarfríið. Gestirnir að norðan byrjuðu leikinn betur og það var allt annað að sjá sóknarleik þeirra en í leik liðanna á fimmtudaginn. Boltinn gekk vel og Norðanmenn voru duglegir að opna hornin fyrir Heiðar Þór Aðalsteinsson og Kristján Orra Jóhannsson sem skoruðu sex af tólf mörkum liðsins í fyrri hálfleik. Afturelding komst 2-1 yfir eftir fjórar mínútur en þá kom frábær kafli hjá gestunum sem skoruðu sjö mörk gegn einu Aftureldingar. Gestirnir náðu tvívegis fimm marka forystu í fyrri hálfleik og voru með góð tök á leiknum. Uppstilltur sóknarleikur heimamanna var mjög stirður og í þau fáu skipti sem þeir náðu að spila sig í góð færi þá varði Tomas Olason oftar en ekki. Um miðjan fyrri hálfleikinn kom Jóhann Gunnar Einarsson inn á fyrir Birki Benediktsson, sem hafði skotið eintómum púðurskotum fram að því, og Frammarinn fyrrverandi breytti sóknarleik Mosfellinga sem fóru að saxa á forskot gestanna. Afturelding vann síðustu níu mínútur fyrri hálfleiks 6-2 og þegar liðin gengu til búningsherbergja var staðan jöfn, 12-12. Liðin héldust í hendur framan af seinni hálfleik en í stöðunni 17-16 fyrir heimamenn komu fjögur mörk frá Akureyringum í röð. Afturelding vann sinn hins vegar aftur inn í leikinn og náði að jafna, þökk sé frábæru framlagi frá Erni Inga, Jóhanni Gunnari og Pálmari Péturssyni sem varði 13 skot í marki heimamanna eftir að hann kom inn á í fyrri hálfleik. Lokamínútur voru svo æsispennandi og dramatískar í meira lagi eins og áður var lýst. Lokatölur 27-26, Aftureldingu í vil. Örn Ingi var markahæstur í liði Mosfellinga með tíu mörk eins og áður sagði. Jóhann Gunnar kom næstur með sjö mörk. Ingimundur Ingimundarson, Nicklas Selvig og Heiðar Þór Aðalsteinsson voru markahæstir í liði Akureyrar með fimm mörk hver. Tomas átti einnig góðan leik í markinu með 17 skot varin. Norðanmenn hafa aðeins fengið eitt stig af sex mögulegum eftir vetrarfríið en þrátt fyrir tapið í dag geta þeir tekið margt jákvætt út úr leiknum.Örn Ingi: Erum með tvo frábæra markmenn Örn Ingi Bjarkason átti frábæran leik þegar Afturelding bar sigurorð af Akureyri, 27-26, í miklum spennuleik í N1-höllinni í dag. Leikstjórnandinn skoraði tíu mörk í leiknum og átta mörk í leiknum gegn Norðanmönnum á fimmtudaginn. Það er því eðlilegt að spyrja hvort Örn vilji ekki spila við Akureyri í hverri einustu umferð? "Jú, þetta gengur vel hjá liðinu og gengur vel hjá mér. Mér líður mjög vel," sagði hann og hló. "Þeir eru með hörkuvörn og það var gaman að geta gert eitthvað af viti í þessum leikjum," sagði Örn en Mosfellingar voru lengi í gang í dag og lentu tvívegis fimm mörkum undir í fyrri hálfleik. "Við vorum mjög slakir í byrjun leiks og vorum bara ekki vaknaðir. Við virkuðum þungir og áhugalausir en náðum svo að koma varnarleiknum í lag og halda þeim í fáum mörkum. "Við það fengum við sjálfstraust í sóknarleiknum og svo kom þetta koll af kolli," sagði leikstjornandinn knái sem bar lof á markvörðinn Pálmar Pétursson sem varði vel eftir að hann kom inn á í fyrri hálfleik. "Við erum með tvo frábæra markmenn og þeir skipta sköpum í nánast hverjum leik."Kristján Orri: Mikil framför frá síðasta leik Kristján Orri Jóhannsson, hægri hornamaður Akureyrar, var súr í broti eftir tapið gegn Aftureldingu í dag. "Þetta er ógeðslegt. Þetta er grátlegt. Mér fannst við eiga allavega eitt stig skilið út úr þessum leik. En svona er boltinn, hann er stundum ósanngjarn," sagði Kristján sem skoraði fjögur mörk úr fimm skotum í dag. Þrátt fyrir vonda niðurstöðu spilaði Akureyri mun betur en í leiknum gegn Aftureldingu á fimmtudaginn þar sem liðið tapaði með fimm mörkum, 22-17. Kristján sá marga ljósa punkta í leik Norðanmanna í dag. "Þetta var mikil framför frá síðasta leik og það er mjög jákvætt. Mér fannst ekki koma langur lélegur kafli eins og hefur komið í síðustu þremur leikjum. "Grimmdin og áræðnin var til staðar allan tímann, sem er mjög gott, og með því áframhaldi munum við ná hala inn einhver stig," sagði Kristján sem var ánægður með sóknarleik Akureyrar í dag. "Sóknarleikurinn kom vel út og við getum byggt á því. Það var bara eitt mark sem skildi liðin að og það er erfitt að finna hvaða atriði urðu þess valdandi að við töpuðum," sagði Kristján að lokum.vísir/stefánvísir/stefán
Olís-deild karla Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Fótbolti Dagskráin í dag: Bíta Úlfarnir líka fast í Liverpool? Sport Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Fleiri fréttir Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH Elvar allt í öllu í útisigri í Íslendingslag „Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“ „Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“ „Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið“ Uppgjörið: Valur - KA/Þór 29-22 | Valskonur fylgja Haukum í úrslit Leik lokið: Haukar-Fram 32-29 | Haukakonur aftur í bikarúrslitin „Af hverju ekki?“ Sjá meira