Hið sögufræga Stuðkompaní treður upp sunnan heiða Jakob Bjarnar skrifar 18. febrúar 2015 09:44 Þrátt fyrir ungan aldur tókst meðlimum Stuðkompanísins að koma sér rækilega á kortið með miklum og góðum 80's-töktum.
Þegar 80's-ið var upp á sitt allra besta kom fram á sjónarsviðið unglingahljómsveit frá Akureyri, sem virtist vera með þetta allt á hreinu, og var það; sítt að aftan, meikaðir og allur pakkinn. Þetta var Stuðkompaníið sem gerði sér lítið fyrir og sigraði Músíktilraunir árið 1987 og átti býsna snarpan feril. Hljómsveitin kemur saman um helgina, í fyrsta skipti sunnan heiða í 26 ár og hlýtur það að teljast sögulegt og í frásögur færandi. Tilefnið er hið árlega Norðlendingakvöld sem haldið verður á Spot í Kópavogi næstkomandi laugardagskvöld. Fremstur í flokki er söngvarinn, háðfuglinn, Eldfuglinn & eftirherman Karl Örvarsson. Hann er hress og tilkynnir Vísi að þarna verði Stuðkompaníið ásamt Hvanndalsbræðrum, „einum mestu sprelligosum íslenskrar tónlistar undanfarin ár og þá mun Magni „okkar“ Ásgeirsson, einn dáðasti söngvari landsins, stíga á stokk.“ Karl Örvarsson er fullur tilhlökkunar að troða upp með sínum gömlu félögum sem voru vart af fermingaraldri þegar þeir komu fram á sjónarsviðið en létu engu að síður vel að sér kveða. Og margar sögur rifjast upp. „Já, við vorum að spila með Stuðmönnum í Húsafelli, hituðum upp fyrir þá. Við vorum svo vitlausir og óforskammaðir að við spiluðum að minnsta kosti 3 Stuðmannalög í upphituninni þarna fyrsta kvöldið. Þegar við komum af sviðinu sagði Kobbi Magg við mig: Það er ekki nóg með að búið sé að stela nafni Stuðmanna heldur er verið að stela prógramminu líka, fyrir framan nefið á manni!“
Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira