Edrú í Ástralíu: Ásgeir Trausti lifir heilsusamlega Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. febrúar 2015 10:12 Ásgeir Trausti er í flottu formi.
Söngvarinn Ásgeir Trausti drakk ekkert á tónleikaferðalagi sínu í Ástralíu, en hann sló í gegn á túrnum, hlaut lof gagnrýnenda auk þess sem lag hans, King and Cross, var valið eitt af tíu bestu lögum ársins hjá stórri útvarpsstöð. „Á síðasta túr sleppti ég alveg að drekka og það var frábært. Þá er maður meira „on it“, sefur betur og hreyfir sig frekar. Annars er alltaf nóg af áfengi í boði þar sem maður kemur á þessum ferðalögum," segir hann í samtali við Fréttastofu. Hann segist reyna að lifa heilsusamlegu lífi, en það geti reynst erfitt þegar maður er á stöðugu ferðlagi.Sjá einnig:Ásgeir í tónleikaferð með alt-J um Ástralíu „Ég byrjaði í átaki á síðasta Ástralíutúr. Ég reyni að hreyfa mig á hverjum degi og hef gaman af því að lyfta. Það erfiðasta við það er að maður þarf að reikna út daginn, hvenær maður hefur tíma. Svo þarf maður að finna sér líkamsræktarstöð á þeim stað þar sem maður er.“Ásgeir Trausti og félagar borðuðu kebab rétt fyrir miðnætti á gamlárskvöld.Síðasta ár var mjög annasamt hjá Ásgeiri í tónleikahaldi og sér hann einnig fram á annasamt ár 2015. Hann mun ferðast um Bandaríkin og Ástralíu og halda tónleika. „Þetta ár verður samt annasamt að öðru leyti. Við tökum þennan Bandaríkjatúr með Hozier, komum svo heim í tvo mánuði og förum svo með alt-J.“Sjá einnig:Ástralir elska Ásgeir Trausta Ásgeir Trausti hefur heillað ástralska áhorfendur og gagnrýnendur upp úr skónum. Útvarpsstöðin Triple J efndi til kosningu yfir bestu lög ársins 2014. Þar lenti Ásgeir Trausti í tíunda sæti með lagið King and Cross. Alls tóku tvær milljónir hlustenda þessarar ríkisreknu útvarpsstöðvar þátt í kosningunni.Sjá einnig:Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlársdag Ásgeir hefur einnig hlotið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína á tónleikum í Ástralíu. Hann hélt tónleika í janúarbyrjun í hinni þekktu tónleikahöll Sydne Opera House. Ástralskir fjölmiðlar kepptust um að lofa kappann. Í síðasta mánuði birti Vísir frétt þar sem umfjöllun fjölda gagnrýnenda var tekin saman og voru þeir sammmála um að Ásgeir Trausti væri magnaður á sviði.Ásgeir Trausti hefur slegið í gegn í Ástralíu.
Tengdar fréttir Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlárskvöld Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Ástralíu síðan í desember. Í kvöld spilar hann tvívegis í Óperuhúsinu í Sydney. Með á sviðinu verða sjö meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Sydney. Á morgun lýkur síðan ferðalaginu með giggi í Melbourne. Þrennir tónleikar eru svo fram undan í Japan og að þeim loknum fer Ásgeir í langa tónleikaferð um Bandaríkin. Fréttastofa fékk sendar nokkrar skemmtilegar myndir frá túrnum um Ástralíu. 7. janúar 2015 12:30 Ásgeir Trausti í Billboard Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti er einn þriggja flytjenda sem fjallað var um á vefsíðu bandaríska tímaritsins Billboard í gær. 17. janúar 2015 10:00 Ástralir elska Ásgeir Trausta Ásgeir Trausti hefur heillað ástralska áhorfendur og gagnrýnendur upp úr skónum. 26. janúar 2015 14:08 Ásgeir í tónleikaferð með Hozier Þeir fara saman um Bandaríkin. Hozier á eitt vinsælasta lag landsins í dag. 27. janúar 2015 09:30 Ásgeir í tónleikaferð með alt-J um Ástralíu Ásgeir sér fyrir sér annasamt ár en stefnir þó á að hefja upptökur á nýrri plötu. 4. febrúar 2015 08:30 Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Ásgeir Trausti borðaði ástralskt kebab á gamlárskvöld Ásgeir Trausti hefur verið á tónleikaferð um Ástralíu síðan í desember. Í kvöld spilar hann tvívegis í Óperuhúsinu í Sydney. Með á sviðinu verða sjö meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Sydney. Á morgun lýkur síðan ferðalaginu með giggi í Melbourne. Þrennir tónleikar eru svo fram undan í Japan og að þeim loknum fer Ásgeir í langa tónleikaferð um Bandaríkin. Fréttastofa fékk sendar nokkrar skemmtilegar myndir frá túrnum um Ástralíu. 7. janúar 2015 12:30
Ásgeir Trausti í Billboard Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti er einn þriggja flytjenda sem fjallað var um á vefsíðu bandaríska tímaritsins Billboard í gær. 17. janúar 2015 10:00
Ástralir elska Ásgeir Trausta Ásgeir Trausti hefur heillað ástralska áhorfendur og gagnrýnendur upp úr skónum. 26. janúar 2015 14:08
Ásgeir í tónleikaferð með Hozier Þeir fara saman um Bandaríkin. Hozier á eitt vinsælasta lag landsins í dag. 27. janúar 2015 09:30
Ásgeir í tónleikaferð með alt-J um Ástralíu Ásgeir sér fyrir sér annasamt ár en stefnir þó á að hefja upptökur á nýrri plötu. 4. febrúar 2015 08:30