„Stefán, tjáir þú þig um eitthvað þessa dagana?“ Birgir Olgeirsson skrifar 23. janúar 2015 21:45 Stefán Eiríksson í Útsvarinu í kvöld. ruv.is „
Stefán, tjáir þú þig um eitthvað þessa dagana?,“ spurði Sigmar Guðmundsson, spyrill í Útsvari, Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu í þætti kvöldsins þar sem Stefán mátti þola þó nokkur skot vegna atburða dagsins. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, kynnti í dag niðurstöðu á frumkvæðisathugun sinni á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Stefáns. Var það mat umboðsmanns að samskipti Hönnu við Stefán á meðan lögreglan rannsakaði ráðuneytið hefðu verið ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar.Stefán EiríkssonVísir/StefánStefán hefur ekki verið áberandi í opinberri umræðu frá því hann yfirgaf lögreglustjórastólinn síðastliðið sumar en mætti í Útsvarið í kvöld fyrir hönd Seltjarnarness. Þar spurði Sigmar hvort Stefán tjái sig um eitthvað þessa dagana. „Ef það eru fimmtán stig í boði þá skal ég alveg svara spurningunum þínum,“ svaraði Stefán en Sigmar sagði það vera mikinn heiður að hafa Stefán í sjónvarpssal í ljósi undangenginn atburða. Þegar kom að flokkaspurningunum tilkynnti Sigmar að reglum þáttarins hefðu verið breytt á þann veg að nú væri það stigahæsta liðið sem ætti að velja fyrst og var það í þessu tilviki lið Stefáns. Á skjánum blöstu við fjórir valflokkar sem voru: Innanríkisráðuneytið, trúnaðargögn, leynifundir og umboðsmaður. „Hvenær á þessu einelti að ljúka,“ spurði Stefán léttur í bragði í kjölfarið. Sigmar spurði hvaða flokk Stefán vildi og svaraði lögreglustjórinn fyrrverandi: „Heyrðu, umboðsmaður er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Sigmar uppljóstraði þá að þáttastjórnendur væru að fíflast í honum og komu í kjölfarið upp „hefðbundnir“ valflokkar. Sjá má klippu úr þættinum inn á vef RUV.is hér.
Tengdar fréttir Krafði Stefán um skýringar eftir að hann ræddi við umboðsmann Hanna Birna Kristjánsdóttir og lögmaður á hennar vegum höfðu samband við Stefán Eiríksson og vildi skýringar. 23. janúar 2015 10:44 Nauðsynlegt að lögregla rannsaki mál án pólitískra afskipta Umboðsmaður Alþingis segir að almenningur eigi að geta treyst því að samskipti eins og fyrrverandi innanríkisráðherra og lögreglustjóra áttu eigi sér ekki stað. 23. janúar 2015 19:27 Óásættanlegt ef stjórnvöld neita að gefa réttar upplýsingar Umboðsmanni Alþingis var tíðrætt um það á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í morgun að hann hefði án árangurs óskað eftir upplýsingum frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um samskipti hennar og Stefáns Eiríkssonar vegna lekamálsins. 23. janúar 2015 12:34 Hanna Birna: „Mistök af minni hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann“ Fyrrverandi innanríkisráðherra bað Stefán Eiríksson afsökunar á fundi með umboðsmanni alþingis. 23. janúar 2015 10:08 Segir afskipti Hönnu Birnu óeðlileg Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, segir að samskipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóra, hafi verið ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar. 23. janúar 2015 09:30 Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Krafði Stefán um skýringar eftir að hann ræddi við umboðsmann Hanna Birna Kristjánsdóttir og lögmaður á hennar vegum höfðu samband við Stefán Eiríksson og vildi skýringar. 23. janúar 2015 10:44
Nauðsynlegt að lögregla rannsaki mál án pólitískra afskipta Umboðsmaður Alþingis segir að almenningur eigi að geta treyst því að samskipti eins og fyrrverandi innanríkisráðherra og lögreglustjóra áttu eigi sér ekki stað. 23. janúar 2015 19:27
Óásættanlegt ef stjórnvöld neita að gefa réttar upplýsingar Umboðsmanni Alþingis var tíðrætt um það á fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar í morgun að hann hefði án árangurs óskað eftir upplýsingum frá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um samskipti hennar og Stefáns Eiríkssonar vegna lekamálsins. 23. janúar 2015 12:34
Hanna Birna: „Mistök af minni hálfu að eiga samskipti við lögreglustjórann“ Fyrrverandi innanríkisráðherra bað Stefán Eiríksson afsökunar á fundi með umboðsmanni alþingis. 23. janúar 2015 10:08
Segir afskipti Hönnu Birnu óeðlileg Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, segir að samskipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóra, hafi verið ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar. 23. janúar 2015 09:30