Lífið

Golden Globe: Boyhood og The Grand Budapest Hotel bestu myndirnar

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
The Grand Budapest Hotel var valin besta myndin í flokki gaman- og söngvamynda.
The Grand Budapest Hotel var valin besta myndin í flokki gaman- og söngvamynda.
Boyhood tekin yfir 12 ára tímabil

Boyhood hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda. Myndin var tekin upp á tólf ára tímabili með sömu leikurunum og fjallar um þroska drengsins Mason frá því hann er fimm ára þar til hann er á átjánda ári. Mason býr með systur sinni og einstæðri móður í Texas. Í myndinni, sem spannar langt tímabil, flyst fjölskyldan meðal annars til Houston svo móðir hans geti klárað háskólagráðu sína, giftist drykkfelldum manni og fleira.

Myndin þykir sýna breyskleika mannsins og erfiðar aðstæður sem fólk á öllum aldri þarf að takast á við. Richard Linklater, leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar hlaut einnig verðlaun á hátíðinni í nótt sem besti leikstjórinn.

Þegar tökur á myndinni hófust var handritið ekki fullklárað. Linklater skrifaði handritið jafnóðum og byggði það á hvernig tökur hefðu gengið árið á undan og lét handritið þróast með leikurunum.

Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.



Millistríðsárin og stórleikarar

Gamanmyndin The Grand Budapest Hotel fjallar um móttökustjóra á hóteli sem fær aðstoð samstarfsfélaga við að sanna sakleysi sitt eftir að hann er sakaður um morð. Sagan gerist að  mestu á fyrri hluta síðustu aldar, á millistríðsárunum, í hinu skáldaða lýðveldi sem kallast Zubrowka.

Ralph Fiennes þykir fara með leiksigur í myndinni sem móttökustjórinn Gustave. Adrian Brody, Willem Dafoe, Jeff Goldblum, Jude Law, Bill Murray og Edward Norton eru á meðal þeirra stórleikara sem fara með hlutverk í myndinni.

Inn í söguþráðinn spannast einnig endurheimt á frægu málverki og barátta um fjármuni.

Hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×