Landspítalinn braut tvisvar gegn sama lækninum Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2015 17:02 Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Landspítalinn hafi brotið lög í ráðningarferli árið 2012 og sniðgengið Stefán Einar Matthíasson. Áður hafði kærunefnd jafnréttismála, komist að þeirri niðurstöðu að Stefán hafi verið hæfastur í starf yfirlæknir æðaskurðlækna, en hann var ekki ráðinn. Landspítalinn höfðaði málið á hendur Stefáni og krafðist þess að úrskurður kærunefndar jafnréttismála yrði felldur úr gildi. Þar komst nefndin að þeirri niðurstöðu að Landspítalinn hafi brotið gegn ákvæðum laga númer 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, við ráðningu í starf yfirlæknis æðaskurðlækninga. Stefán hafði sótt um stöðu yfirlæknis æðaskurðlækninga árið 2012 og var talinn hæfari til að gegna starfinu en sú sem var ráðin. Stöðunefnd lækna mat alla þrjá sem sóttu um starfið hæfa, en raðaði þeim ekki upp eftir hæfni og vísaði í umsagnir sínar. Þar kom fram „allmikill munur á umsækjendum á mælanlegum hæfnisþáttum svo sem menntun, starfsreynslu þar á meðal við æðaskurðlækningar, kennslu- og stjórnunarreynslu, félagsstörf og ritstörf,“ eins og segir í dómsorðum Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstiréttur segir að dómur héraðsdóms skuli standa og að ríkissjóður greiði málskostnaðinn. Árið 2010 dæmdi Hæstiréttur Landspítalann til að greiða Stefáni fimm milljónir vegna ólögmætrar uppsagnar árið 2005 og Stefán hafði ekki verið í föstu starfi á sjúkrahúsi í sex ár þegar hann sótti um stöðu yfirlæknis. Dóm Hæstaréttar má sjá hér á heimasíðu réttarins.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira