LeBron James þurfti að komast í góða veðrið í Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2015 16:45 LeBron James. Vísir/Getty
LeBron James hefur ekkert spilað með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni að undanförnu en besti körfuboltamaður heims er að ná sér góðum af hné- og bakmeiðslum sem hafa plagað hann. LeBron James hefur ekkert verið í fríi þrátt fyrir að missa af leikjum og æfingum Cleveland-liðsins því hann er búinn að vera í endurhæfingu þrisvar til fjórum sinnum á dag. Læknarnir "bönnuðu" LeBron James þó að sitja á bekknum í leikjum liðsins því það þótti ekki gott fyrir bakið hans. James fór því ekki með í útileiki á móti Charlotte og Philadelphia og var heldur ekki á bekknum í heimaleik á móti Dallas Mavericks eða í leiknum á móti Houston Rocktes. LeBron James nýtti hinsvegar tækifærið og fékk að fara suður til Miami til að komast í heitara veður enda frostið mikið norður í Cleveland þessa dagana. „Það hjálpar að við erum að fara að spila í heitari borgum því skrokkurinn minn hefur gott af því," sagði LeBron James um komandi útivallartörn Cleveland-liðsins á Vesturströndinni. „Þetta er allt að koma. Vika eitt er að baki og það er ein vika eftir. Ég er á réttri leið og mér líður betur með hverjum deginum," sagði LeBron James sem hefur aldrei verið svona lengi frá á ferlinum. „Ég hata að missa af leikjum og það sést vel á ferilsskránni minni. Þetta hefur því verið erfitt fyrir mig en ég varð bara að hlusta á líkamann," sagði James.
NBA Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Sjá meira