Íslensk kvikmynd um sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna Viktoría Hermannsdóttir skrifar 12. mars 2015 15:00 Leikstjórinn segir að einn helsti hvatinn að gerð myndarinnar hafi verið persónuleg tengsl og áhugi Jóns Baldvins á Sovétríkjunum.
Íslenska heimildarmyndin Þeir sem þora verður frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi um næstu mánaðamót. Myndin lýsir aðkomu Íslands að baráttu Eystrasaltsríkjanna, Eistlands, Lettlands og Litháens, í skjóli umbótastefnu Míkaíls Gorbatsjov, fyrir endurreisn sjálfstæðis þeirra árin 1986 til 1991. Myndin var frumsýnd í Eistlandi á dögunum og fékk þar góðar viðtökur að sögn leikstjórans, Ólafs Rögnvaldssonar. Myndin var svo sýnd í Forsetahöllinni í Vilníus í Litháen í gærkvöldi en þá voru liðin nákvæmlega 25 ár síðan Litháar lýstu yfir sjálfstæði. Myndin var svo sýnd í litháíska sjónvarpinu í beinu framhaldi. „Hugmyndin kom frá Kolfinnu Baldvinsdóttur sem fékk mig til að fara í þetta með sér,“ segir Ólafur, sem er leikstjóri myndarinnar en Kolfinna er handritshöfundur og spyrill myndarinnar. „Myndin fangar hina örlagaríku atburðarás sem fór af stað í höfuðborgum Eystrasaltsríkjanna, Vilníus, Ríga og Tallinn, í janúar 1991, þegar Sovétherinn reyndi á grimmúðlegan hátt að kæfa anda frelsis og ganga milli bols og höfuðs á hreyfingum sjálfstæðissinna. Á þessari örlagastundu var utanríkisráðherra Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, eini vestræni utanríkisráðherrann sem heimsótti höfuðborgirnar þrjár og sýndi með því stuðning þjóðar sinnar í verki,“ segir Ólafur. Í kjölfar valdaráns í Moskvu í ágúst 1991 varð Ísland fyrsta ríki heims til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Í kjölfarið fylgdi hröð atburðarás og Sovétríkin heyrðu sögunni til í desember sama ár. Myndin fjallar um sjálfstæðisbaráttu þessara landa og byggir á viðtölum við marga. Ólafur segir að persónuleg tengsl og sérlegur áhugi Jóns Baldvins á Sovétríkjunum hafi verið helsti hvatinn. „Hann var, ásamt danska utanríkisráðherranum Uffe Elleman Jensen, dyggasti stuðningsmaður Eystrasaltsríkjanna innan Sameinuðu þjóðanna, NATO og fleiri stofnana og talaði máli þeirra á vettvangi alþjóðlegrar stjórnmálaumræðu þegar færi gafst. Þeir gerðu sér báðir grein fyrir því að alþjóðasamfélagið hafði í raun lítinn sem engan áhuga á þessum litla afkima Sovétríkjanna og voru jafnframt þeirrar skoðunar að innlimun Eystrasaltsríkjanna í Sovétríkin í seinni heimsstyrjöldinni stæðist ekki lög,“ segir Ólafur sem var viðstaddur sýningu myndarinnar í Vilníus í gærkvöld ásamt Jóni Baldvin, eiginkonu hans, Bryndísi Schram, og dóttur þeirra, Kolfinnu. Myndin er unnin í samvinnu við fyrirtæki í Eystrasaltsríkjunum.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira