Sjáðu Þóreyju Rósu og stöllur hennar fagna sögulegum sigri Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. maí 2015 09:00 Þórey Rósa færði sig upp á bekk og kallaði yfir sínar stúlkur. vísir
Larvik hefur orðið norskur meistari í handbolta kvenna tíu ár í röð og ekki tapað deildarleik á þeim tíma. Það er eitt allra besta kvennalið Evrópu. Þóreyju Rósu Stefánsdóttur og stöllum hennar í Vipers Kristiansand var alveg sama um það í gær þegar liðið gerði sér lítið fyrir og vann stórveldið Larvik með sex marka mun, 31-26, í fyrri undanúrslitaleik liðanna í norsku úrvalsdeildini. Vipers komst með naumindum í undanúrslitin eftir æsispennandi leiki gegn Tertnes í átta liða úrslitunum, en héldu nú flestir að tímabilinu væri lokið hjá Vipers þegar það mætti Larvik. Þórey Rósa fór á kostum í leiknum og skoraði átta mörk, en hún var markahæst á vellinum. Norska landsliðskonan Nora Mörk skoraði sjö mörk fyrir Larvik, en með liðinu spila nokkrar norskar landsliðskonur. „Þetta er ótrúlegt. Þetta er ástæðan fyrir því að ég kom hingað. Það er gaman að hafa það á ferilskránni að vera einn fárra þjálfara sem hefur unnið Larvik. Þetta er líklega besta lið heims,“ sagði sigurreifur Gunnar Pettersen, þjálfari Vipers, við NRK eftir leikinn. Þórey Rósa og félagar eru þó ekki komnar í úrslitin, enda eiga þær eftir útileikinn á einum erfiðasta velli í evrópskum handbolta í dag. Stelpurnar í Vipers leyfðu sér að fagna vel og innilega inn í klefa eftir leik þar sem stuðpinninn Þórey Rósa var allt í öllu.Sjá má fögnuð Vipers-kvenna með því að smella hér.
Handbolti Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira