Norskur ríkisborgari er í haldi Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Frá þessu greindi Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, á blaðamannafundi í gær en þar upplýsti hún að stjórnvöld hefðu fengið upplýsingar um að Norðmanninum hafi verið rænt af hryðjuverkahópi í janúar síðastliðnum.
Það var hins vegar ekki fyrr en síðar sem upplýsingar bárust um að maðurinn væri í haldi vígamanna Íslamska ríkisins.
Solberg sagði ekki koma til greina að greiða lausnargjald fyrir manninn, það gengi gegn grundvallarreglum, en allt annað yrði reynt til að fá manninn lausan.
