Félagsvinnan skemmtileg Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. mars 2015 12:00 Við gerum allt saman, hvort sem það er að dreifa blómum, tveir og tveir, pakka sælgætinu eða svíða sviðin,“ segir Friðjón um félagana í Jörfa. Fréttablaðið/GVA ?
Við vildum gefa veglega gjöf á þessu ári af því að klúbburinn á merkisafmæli og komumst að því að Reykjalund vantaði göngubretti. Það gagnast vel við endurhæfingu sjúklinga og okkar markmið er alltaf að láta gott af okkur leiða,? segir Friðjón Hallgrímsson, forseti Kiwanisklúbbsins Jörfa. Spurður út í önnur styrktarverkefni klúbbsins nefnir hann ABC barnaþorp, reiðhjólahjálma til allra sex ára skólabarna og stuðning við langveik börn og fjölskyldur þeirra. ?En stóra verkefni Kiwanishreyfingarinnar á alþjóðavísu er að útrýma stífkrampa.? Friðjón segir þrjátíu félaga í Jörfa og sjálfur hefur hann talist til þeirra í tæp fimm ár. ?Ég er bara búinn að vera stutt miðað við marga aðra. Tveir af þeim sem stofnuðu klúbbinn árið 1975 eru enn starfandi,? segir hann. En hvaðan kemur nafnið? ?Klúbburinn er nefndur eftir landsvæðinu Jörfa, sem er í kringum Húsgagnahöllina. Hann var nefnilega stofnaður í Árbænum. Svo hafa félagarnir dreifst víða um efri byggðirnar í Austurborginni. Ég er einn vestan Elliðaáa.? Friðjón segir þó hvorki búsetu né önnur skilyrði sett fyrir inngöngu félaga í klúbbinn. ?Jörfafélagar þurfa að vera félagslyndir auk þess að vera heiðarlegir og áhugasamir um velferð þeirra sem minna mega sín.? Starfið byggist sem sagt á að gera góðverk en til að geta látið eitthvað af hendi rakna þarf að afla fjár. ?Við finnum okkur fjáröflunarverkefni, seljum konudagsblóm sem við keyrum út að morgni konudags, seljum sælgæti fyrir jólin og höldum sviðaveislur,? nefnir Friðjón sem dæmi. ?Á Reykjalundi Hópur úr Kiwanisklúbbnum Jörfa afhenti starfsfólki Reykjalundar göngubretti nýlega, að verðmæti 1.250.000 krónur.Við gerum allt saman, hvort sem það er að dreifa blómum, tveir og tveir, pakka sælgætinu eða svíða sviðin og slík félagsvinna er alltaf skemmtileg.? Félagsfundir eru tvisvar í mánuði og stjórnin fundar mánaðarlega og leggur línurnar, að sögn forsetans. ?Svo eru ýmsar nefndir sem sjá um sína hluti. Starfið er mjög kerfisbundið og þannig náum við árangri.? Til skemmtunar og fróðleiks segir Friðjón hina ýmsu fyrirlesara fengna á fundi einu sinni í mánuði og stundum farið í ferðalög. ?Um síðustu helgi héldum við fund og árshátíð á Hótel Á að Kirkjubóli í Hvítársíðu í Borgarfirði,? upplýsir hann. ?Það var mjög notalegt og andi skáldsins Guðmundar Böðvarssonar sveif yfir vötnum.?
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Sjá meira