Fá ekki að slátra svínum: Síld og fiskur vill undanþágu frá samkeppnislögum Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. maí 2015 12:30 Beiðnum vegna svínaslátrunar var frestað en öllum nema einni beiðni um alífuglaslátrun var hafnað. Vísir/Auðunn
Undanþágubeiðni vegna svínaslátrunar var frestað á fundi undanþágunefndar Dýralæknafélags Íslands. Síld og fiskur hefur óskað eftir undanþágu frá Samkeppnislögum til að geta gefið yfirlýsingu um að kjötið fari ekki í sölu. Nokkrar beiðnir lágu fyrir á fundi nefndarinnar í dag vegna svína- og alífuglaslátrunar. Beiðnum vegna svínaslátrunar var frestað en öllum nema einni beiðni um alífuglaslátrun var hafnað. Sigríður Gísladóttir, stjórnarmaður í Dýralæknafélagi Íslands, segir að afgreiðslu beiðnanna hafi verið frestað meðal annars vegna þess að ekki hafi legið fyrir yfirlýsingar um að kjötið færi ekki í sölu. „Niðurstaða undanþágunefndar var sú að það verður frestað afgreiðslu beiðnum um svínaslátrun. Í fyrsta lagi vantaði yfirlýsingu um geymslu eða frystingu auk þess sem það hafa ekki komið skýrslur um dýravelferð á þessum búum sem óskað er eftir slátrum frá,“ segir hún. „Svo voru þarna beiðnir um alífuglaslátrun og þeim var hafnað frá öllum nema Ísfugli en þeir hafa haldið samkomulag um geymslu en afgreiðslu á þeirri beiðni hefur einnig verið frestað.“ Gert er ráð fyrir að beiðnirnar verði teknar fyrir aftur á morgun en það mun þó ráðast af því hvernig samningafundur í kjaradeilu dýralækna fer í dag. Gunnar Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Síldar og fisks, segir niðurstöðuna vonbrigði. „Það eru ákveðin vonbrigði að þeir skuli ekki ahfa samþykkt þessa beiðni okkar um að slátra en vonandi verður jákvæð niðurstaða þegar þeir afgreiða beiðnina endanlega,“ segir hann. Ekki er ljóst hvort að fyrirtækið muni gefa út yfirlýsingu um að kjötið farið ekki í sölu. „Við sendum í morgun beiðni til Samkeppniseftirlitsins um undanþágu frá samkeppnislögum þannig að við gætum haft samráð við aðra svínaræktendur um þessa ráðstöfun þannig að við bíðum eiginlega eftir Samkeppniseftirlitinu til að vita hvort okkur sé heimilt að gefa slíka yfirlýsingu,“ segir hann. Ekki er ljóst hvenær niðurstaða Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira