Staðreyndir um lögreglumenn á Íslandi 2015 Sigvaldi Arnar Lárusson skrifar 15. október 2015 12:52 Ég ætla aðeins að fá að koma inn á starfið, þó að mér finnist það óþarft þar sem allir vita hversu mjög krefjandi þetta starf er. Allir vita og hafa heyrt þessar sögur okkar um að við sjáum allan sorann, við erum inni á heimilum þar sem börn eru þolendur ofbeldis af öllum toga. Að ræða við barn sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi, að hlusta á nákvæmar lýsingar þessa barns af því hvað gerðist, vera innan um út úr dópaða einstaklinga í vígamóð, eiga við andlega sjúka einstaklinga, skera ungan aðila niður sem hengdi sig og tilkynna síðan foreldrum um andlát barnsins, verðum fyrir hrákum og spörkum, okkur er hótað, tölum við aðila sem ætla að taka eigið líf, við förum þangað þar sem aðili hefur verið beittur miklu líkamlegu ofbeldi af hálfu maka og jafnvel hafa börnin verið vitni af öllu, aðkoma að ljótum slysum, taka á móti barni. Ég gæti haldi áfram og áfram að skrifa eitthvað í líkingu við þetta, af nógu er að taka í mínum banka. Nú kunna einhverjir að spyrja og segja: Hvað ertu að væla? Þú valdir þetta starf og ert þarna sjálfviljugur. Hárrétt hjá þér. Ég er hérna af fúsum og frjálsum vilja og í skemmtilegasta starfi sem ég hef verið í. Ég er ekki að kvarta undan þessum verkefnum sem ég þarf að sinna, alls ekki, Þetta er jú vinnan mín og ég er stoltur af henni og vinnufélögum mínum. Það sem ég er að kvarta yfir eru launin. Helvítis fokking skítalaunin sem við erum á. Í öllum þessum verkefnum sem ég er búinn að nefna hér að ofan koma að lögreglumenn sem eru með 270.000.- í grunnlaun á mánuði. Sumir segja að við eigum að „töffarast í gegnum þetta“ Ég er engin töffari. Ég er bara alveg eins og þú. Kem heim eftir vinnu til konu og barna. Við erum bara Pétur og Páll. Svona verkefni leggjast á sálina á okkur og hlaðast þar upp. Við erum ekki að veigra okkur við starfið eins og ég sagði áðan. Við viljum bara að þetta starf sé virt til tekna og að við séum metin að verðleikum. Við erum að stytta lífaldur okkar í þessu starfi, Það er staðreynd. Nú langar mig til að spyrja þig kæri lesandi „ yrðir þú sáttur við þessi laun ef þú værir að sinna þessari vinnu?“ Lögreglumenn í landinu eru að bugast, það er bara þannig. Álagið er slíkt að vinnufélagar mínir hafa undanfarið verið fluttir burt með sjúkrabílum úr vinnu vegna álags. Fleiri en einn, fleiri en tveir og fleiri en þrír. Ég get lofað ykkur því að þeir verða fleiri á næstunni ef ástandið lagast ekki. Rannsóknarlögreglumenn eru farnir að forgangsraða forgangsmálum og hafa ekki undan að rannsaka mál, geta með engu móti sinnt því sem er að gera og unnið sig niður úr bunkanum. Almennir lögreglumenn geta með engu móti sinnt frumkvæðisverkefnum sökum manneklu og fjársveltis og nú nýjast kílómetrakvóta í akstri lögreglutækja. Lögreglumenn í Flugstöð Leifs-Eiríkssonar verða varir við gríðarlega aukið rennsli þar í gegn, enda aukning á farþegum þar rúm 229% á örfáum árum og fer bara upp á við. Aðgerðir sem lögreglumenn hafa þurft að grípa til undanfarið eru eins og ég hef sagt algerlega gegn okkar gildum, engin lögreglumaður er stoltur af því að standa á sníkjunni framan við stjórnarráðið og biðja um launaleiðréttingu. Þetta eru aðgerðir sem við erum nauðbeygð til að gera enda komið að þolmörkum. Hér koma nokkrar sorglegar staðreyndir. Það er staðreynd að grunnlaunin eru 278.738.- Það er staðreynd að lögreglan er ekki fær um að halda uppi ásættanlegri frumkvæðislöggæslu vegna fjárskorts og manneklu. Það er staðreynd að heilsu lögreglumanna fer hrakandi sökum álags. Það er staðreynd að lögreglumenn eru að bugast undan álagi. Það er staðreynd að lögreglumenn hafa verið fluttir með sjúkrabílum úr vinnu sökum álags. Það er staðreynd að lögreglan þarf að forgangsraða forgangsmálum. Það er staðreynd að lögreglan hefur takmarkaðan tíma og mannskap til að rannsaka mál sem til hennar berast. Það er staðreynd að ferðamönnum hefur fjölgað um 229% á nokkrum árum. Það er staðreynd að lögreglumönnum hefur fækkað um nokkra tugi á sama tíma. Það er staðreynd að fleiri lögreglumenn munu verða fluttir með sjúkrabílum fari ástandið ekki að lagast. Það er staðreynd að lögreglumenn kvíða fyrir því að fara á eftirlaun. Það er staðreynd að lögreglumaður sem eftir 40 ára starf mun fá 290.000 kr á mánuði fyrir skatt. Það er staðreynd að vaktavinna styttir líf þeirra sem hana vinna. Það er staðreynd að er við hættum að vinna þá hellast þessar minningar yfir okkur, allur sorinn sem við höfum upplifað, allir staðir þar sem sorinn átti sér stað, lykt og fleiri minningar. Það er staðreynd að glæpir eru orðnir harðari. Það er staðreynd að lögreglumenn eru 640. Það er staðreynd að við þurfum að vera hið minnsta 860. Það er staðreynd að fleiri lögreglumenn slasast við dagleg störf í dag en fyrir nokkrum árum síðan. Það er staðreynd útborguð laun lögreglumanns eru tæpar 285.000.- Það er staðreynd að lögreglumenn þurfa að vinna aukavaktir á frídögum til að eiga í sig og á. Það er staðreynd að við viljum verkfallsréttinn aftur. Það er staðreynd að við erum orðin þreytt. Það er staðreynd að við erum orðin reið. Það er staðreynd að ríkið hefur svikið okkur í 29 ár. Það er staðreynd að návígi við sjálfsvíg er ekki eins og í sjónvarpinu. Það er staðreynd að þessar aðgerðir okkar stríða gegn gildum allra lögreglumanna. Það er staðreynd að lögreglumenn geta staðið saman og við erum stolt af því sem við gerum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna flutti ég á Akranes? Sigurður Vopni Skoðun Skilaboð til heimsins: Við megum vera vond við börn Jón Kalman Stefánsson Skoðun Eigi veldur sá er varar! Stefán Pálsson Skoðun Við byrjum of seint: Um mæður, börn og ábyrgð okkar í umræðunni Elísabet Ósk Vigfúsdóttir Skoðun Hugleiðingar um leikskólamál í borginni Katrín Haukdal Magnúsdóttir Skoðun Vestmannaeyjar skila milljörðum - en fá hvað í staðinn? Jóhann Ingi Óskarsson Skoðun Sjálfstæðisbarátta nútímans Logi Einarsson Skoðun Íþróttabærinn Akranes – meira en aðstaða, þetta er líf Liv Åse Skarstad Skoðun Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum Aðalheiður Snæbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Týnd börn – við megum ekki líta undan Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Manst þú eftir náttúrunni? Rakel Hinriksdóttir skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar! Stefán Pálsson skrifar Skoðun Náttúran þarf virkt lýðræði Guðrún Schmidt skrifar Skoðun Við byrjum of seint: Um mæður, börn og ábyrgð okkar í umræðunni Elísabet Ósk Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Minna flækjustig og fleiri tækifæri í grænum útlánum Aðalheiður Snæbjarnardóttir skrifar Skoðun Íþróttabærinn Akranes – meira en aðstaða, þetta er líf Liv Åse Skarstad skrifar Skoðun X-R slær Borgarlínu verkefnið út af borðinu Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Vestmannaeyjar skila milljörðum - en fá hvað í staðinn? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Hvers vegna flutti ég á Akranes? Sigurður Vopni skrifar Skoðun Hugleiðingar um leikskólamál í borginni Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisbarátta nútímans Logi Einarsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal: Við getum gert betur Pálína Hildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar Skoðun Hvað er raunverulega hollt mataræði? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Sykursýki 2 orðin að heimsfaraldri Anna Lind Fells skrifar Skoðun Áhættustjórnun í fiskeldi Otto Færovik skrifar Skoðun Gamblað með göng og líf lögð undir Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Að venja barn af bleyju Elín Erna Steinarsdóttir skrifar Skoðun Jarðsagan og loftslagsbreytingar Brynhildur Magnúsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til heimsins: Við megum vera vond við börn Jón Kalman Stefánsson skrifar Skoðun Þegar þjóð reis upp og mótmælti kröftuglega – en hvað gerðist svo? Hörður Torfason skrifar Skoðun Heimilin og orkuskiptin í forgang á raforkumarkaði Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Verðtryggður Seðlabankastjóri Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Óskað er eftir forystu í efnahagslegum þrengingum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Ekki vera sjálfsafgreiðslukassi! Þorsteinn Valdimarsson skrifar Skoðun Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé skrifar Skoðun Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við byrjum of seint: Um mæður, börn og ábyrgð okkar í umræðunni Elísabet Ósk Vigfúsdóttir skrifar
Skoðun Röskva vill sjá hjúkrunarfræðinga á sjúkrabíl og meiri nýsköpun í námi Dagbjört Lára Bjarkadóttir,Ríkharður Daði Ólafsson skrifar
Skoðun Heimilin og orkuskiptin í forgang á raforkumarkaði Dagný Halldórsdóttir,Tryggvi Felixson skrifar
Skoðun Hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefur verið tekið upp í íslenskan rétt? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar