Fannar og félagar munu ekki spila lokaleikinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. júní 2015 14:15 Fannar er hér í leik með Wetzlar gegn Kiel á sínum tíma. vísir/getty „
Það er alveg ömurlegt að lenda í þessu," segir handboltamaðurinn Fannar Friðgeirsson en félag hans, Grosswallstadt, er gjaldþrota. Í gær var tilkynnt að Grosswallstadt hefði farið í greiðslustöðvun eftir að félagið fékk ekki keppnisleyfi fyrir næstu leiktíð. Félagið er því gjaldþrota og þarf að byrja upp á nýtt í C-deildinni næsta vetur án þess að vera með leikmann á samningi. Leikmenn liðsins hafa ekki farið varhluta af vandræðum félagsins en Fannar hefur ekki fengið greidd laun í fimm mánuði. „Sumir hafa ekki fengið greidd laun lengur en það. Það er búið að segja við okkur að þetta reddist allt en það gekk ekki eftir hjá þeim. Ég, og fleiri, trúðum því sem sagt var við okkur."Sjá einnig: Grosswallstadt í greiðslustöðvun Þrátt fyrir alla erfiðleikana þá hefur liðinu gengið merkilega vel en það er í sjötta sæti þýsku B-deildarinnar og var ekki fjarri því að komast upp í úrvalsdeildina. „Það er búinn að vera mikill pirringur í allan vetur. Menn að spyrja á æfingum hvort einhver hafi fengið laun og svona. Við höfum tapað niður leikjum sem við hefðum átt að vinna létt og það gæti skilið á milli þess hvort við förum upp eða ekki. Ef allt hefði verið eðlilegt hefðum við keppt um að fara upp." Aðeins ein umferð er eftir í deildinni og lið Fannars á útileik gegn Bayer Dormagen. Sá leikur verður ekki spilaður. „Við munum ekki spila þennan leik. Þar sem félagið er farið í greiðslustöðvun þá erum við ekki lengur í vinnu og þar af leiðandi ekki tryggðir. Því er enginn að fara að tefla á tvær hættur með að spila leik sem við þurfum ekki að spila."
Handbolti Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira