Fengum söng og súkkulaðiköku Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. febrúar 2015 11:00 "Þegar ég var tvítugur ákváðu félagar mínir að viðeigandi væri að fá vaxtarræktarkonu til að dansa, það var meira sérkennilegt en nokkuð annað, ég vona að þeir hringi ekki í hana núna,“ segir Ingólfur Bjarni. Vísir/GVA „
Ég vona að einhvernsstaðar finnist laust borð í kvöld, þetta er allt frekar óskipulagt hjá mér ennþá,“ segir Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður léttur þegar forvitnast er um hátíðahöld dagsins hjá honum fertugum. Beðinn að rifja upp eitthvert fríkað afmælispartí fer hann í huganum tuttugu ár aftur í tímann. „Þegar ég varð tvítugur ákváðu félagar mínir að viðeigandi væri að fá vaxtarræktarkonu til að dansa fyrir mig, það var meira sérkennilegt en nokkuð annað og ég vona að þeir hringi ekki í hana aftur núna!“ Einn daginn nú í vikunni kveðst Ingólfur Bjarni hafa dottið inn í óvænta afmælisveislu sem samstarfsfólk hans hélt á RÚV. „Við vorum þrjú sem áttum stórafmæli í sömu vikunni, við Andrea Róberts mannauðsstjóri fertug og Jónatan Garðarsson dagskrárgerðarmaður og Eurovisionpabbi sextugur. Við fengum söng og súkkulaðiköku.“ Þegar Ingólfur Bjarni er yfirheyrður um upprunann og ferilinn svarar hann: „Ætli það sé ekki heiðarlegast að segja að ég sé úr Breiðholti og Grafarvogi? Tók fyrstu tíu árin í Æsufellinu og var svo polli í Grafarvoginum að leika mér í húsgrunnum og við kofabyggingar. Fór svo í menntó niður í bæ og eftir stúdentspróf að vinna en síðan til Þýskalands í háskólanám. Þar bjó ég í sex ár og lærði stjórnmálafræði, blaðamennsku og bandarísk fræði.“ Fékkstu strax vinnu þegar þú komst heim? „Ég náði ekki einu sinni að klára prófin. Tíu dögum fyrir síðasta próf hringdi Kalli Garðars sem var þá fréttastjóri á Stöð tvö í mig og spurði hvort ég væri ekki að verða búinn, það vantaði fólk á vaktir. Ég hefði örugglega reynt að troða mér einhvernsstaðar í fréttir en hvort ég hefði komið heim veit ég ekki, ef Kalli hefði ekki hringt.“ Ingólfur Bjarni kveðst hafa byrjað að vinna frílans fyrir Stöð 2 að utan og tekið sumarafleysingar þar og því hafi Kalli vitað af honum. Í dag gegnir Ingólfur Bjarni stöðu nýmiðlastjóra hjá Ríkisútvarpinu, og heldur meðal annars utan um ruv.is. „Ég færði mig yfir á RÚV árið 2005, fékk tilboð og ákvað að prófa hvernig lífið væri þar. Nú er ég orðinn sanntrúaður Rúvari og eiginlega bara giftur vinnunni, vakna á morgnana, kem heim, fæ mér eitthvað að borða og fer að sofa. Svolítið sorglegt. En þetta er það sem mig langar að gera og það sem ég ætla að gera þannig að ég er í raun mjög heppinn.“
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira