Já með „notendaprófanir“ á UTmessunni Samúel Karl Ólason skrifar 7. febrúar 2015 15:59 Frá sýningarrýmy Já.
Á UTmessunni sem stendur nú yfir í Hörpu er Já með opnar notendaprófanir eða svokallað „live lab“. Markmið Já með opnum notendaprófunum er að þróa Já.is vefinn í samvinnu við notendur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Já. Helstu tækni- og tölvufyrirtæki taka þátt í UTmessunni, sem er einn stærsti viðburður ársins í tæknigeiranum hérlendis. Í dag gefst almenningi tækifæri til að heimsækja sýningarsvæðið. „Tilgangur Já með þátttöku á UT messunni er að fræða fagfólk og sýningargesti um það hvernig best er hægt að nýta þjónustu Já í daglegu lífi. Markmið Já er að auðvelda dagleg samskipti í lífi fólks og er það haft að leiðarljósi í allri nýsköpun fyrirtækisins,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir, Vöru- og viðskiptastjóri hjá Já, í tilkynningunni. Á UT messunni kynnir Já einnig forritunarkeppni undir yfirskriftinni AppKapp sem fer fram í vor. Þátttakendum gefst tækifæri til að forrita app sem notar upplýsingar úr API eða öðrum gagnasöfnun Já. Appið getur verið fyrir farsíma, símstöðvar, vefsíður, úr og gleraugu. Þá segir þar að nýr vefur Já.is muni líta dagsins ljós á næstu vikum. „Það skiptir sköpum fyrir Já að vekja athygli á mikilvægi upplýsingatækninnar þar sem en er mikill skortur á tölvumenntuðu fólki hérlendis. Það er hagur Já að hvetja sem flesta, konur og karla, að velja upplýsingatæknigeirann sem framtíðarstarfsvettvang. Á UT messunni gefst fólki tækifæri til að sjá hvernig tækni tengist á fjölbreyttan hátt einstaklingum, fyrirtækjum og samfélaginu,“ segir Margrét. Um 94% Íslendinga eru skráðir á Já.is og um 60-70 þúsund stakir notendur heimsækja síðuna á virku degi og rúmlega 500 þúsund á mánuði. Rúmlega 60 þúsund manns hafa náð í Já.is appið og opna um 20 þúsund notendur appið í hverri viku um 60 þúsund sinnum. Meðal helstu nýjunga á nýrri vefsíðu Já.is er hraðari og aðgengilegri leit, betri uppsetning á vörumerkjasíðum og ný fyrirtækjasíða Já hf. Auk þess er búið að uppfæra útlit vefsins.Almenningur getur skoðað sýningarsvæði UTmessunnar í dag.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira