Fjöldi skipulagðra árása í Tyrklandi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. ágúst 2015 13:30 Rannsakendur girtu af svæðið umhverfis lögreglustöðina þar sem ein sprengjanna sprakk. Vísir/epa
Nokkrar skipulagðar árásir hafa verið gerðar í Tyrklandi í dag. Fimm meðlimir tyrkneskra öryggissveita létust í sprengjuárás í suðausturhluta landsins auk þess sem sprengju var kastað í borginni Istanbúl, þar sem að minnsta kosti sjö særðust. Tveir árásarmenn skutu úr byssum fyrir utan ræðismannaskrifstofu Bandaríkjanna í Istanbúl í morgun en enginn slasaðist í þeirri árás. Árásarmennirnir flúðu af vettvangi en lögreglu tókst að handsama annan þeirra, sem er talin vera kona samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum. Sendiráðinu hefur nú verið lokað þar til tilkynnt verður um annað. Önnur árás varð á svipuðum tíma í héraðinu Sirnak í suðaustur hluta Tyrklands, þar sem sprengju var kastað með þeim afleiðingum að fjórir lögreglumenn létust. Þá sprakk bílasprengja nálægt lögreglustöð í hverfinu Sultanbeyli þar sem tíu manns slösuðust, þar af þrír lögreglumenn. Tveir grunaðir árásarmenn voru í kjölfarið skotnir af lögreglu en í þeim átökum slasaðist lögreglumaður illa og lést af sárum sínum á spítala. Í kjölfar árásanna hafa herþyrlur kastað sprengjum að búðum kúrdíska verkamannaflokssins, en kúrdar eru taldir bera ábyrgð á árásunum. Spenna á milli tyrkneskra yfirvalda og kúrda hefur farið vaxandi síðustu vikur, eða síðan tyrkneska ríkisstjórnin tilkynnti að hún myndi taka virkari þátt í baráttunni gegn íslamska ríkinu. Kúríski verkamannaflokkurinn, PKK, hefur barist gegn vígamönnum íslamska ríkisins og sigrað þá í nokkrum bardögum í bæði Sýrlandi og Írak. Tyrknesk yfirvöld, sem og nokkur vestræn ríki, telja kúrdíska verkamannaflokkinn aftur á móti hryðjuverkasamtök.
Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Fleiri fréttir Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Sjá meira