Segir byggingarhugmyndir forsætisráðherra sýna alvarlegan dómgreindarskort sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 28. desember 2015 15:18 "Að forsætisráðherra sjálfur ákveði sjálfur útlit og hönnun opinberrar byggingar er fáheyrt og fordæmalaust í vestrænu lýðræðisríki," segir Andri Snær.
Andri Snær Magnason rithöfundur segir það að forsætisráðherra ákveði sjálfur útlit og hönnun opinberrar byggingar sýna alvarlegan dómgreindarskort í hans nærumhverfi og afhjúpa alvarlega veikleika í stjórnsýslu Íslands. Um sé að ræða fordæmalaust mál í vestrænu lýðræðisríki. „Vilji menn efla umræðu um arkítektúr, breyta byggingareglugerðum og auka kröfur um fagurfræði nýbygginga er það allt annað mál. Ef menn vilja setja reglur um efnisval, skala, gluggasetningu eða annað í miðborg Reykjavíkur má prófa að ræða það, en að sniðganga okkar kynslóð listamanna og taka frá okkar kynslóð einstakt tækifæri til að skapa Guðjón Samúelssyni og dætur samtímans er algjörlega forkastanlegt,“ skrifar Andri Snær á vefsíðu sína. Andri vísar í hugmyndir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra um að byggja skrifstofuhúsnæði fyrir Alþingi sem taki mið af hundrað ára gamalli teikningu Guðjóns Samúelssonar. „Tillaga Sigmundar eða óánægja með samtímann er að sumu leyti skiljanleg í ljósi ljótra húsa og jafnvel hverfa sem hafa risið undanfarin ár. En ljótleiki í samtímanum er yfirleitt ekki vegna arkítektúrsins heldur vegna skorts á honum, ljótleikinn stafar af græðgi og metnaðarleysi sem hefur því miður ekki ríkt í verktakabransanum en þar hafa glatast ótal tækifæri á síðustu árum. Írónían er einmitt sú að í hópi þessara sömu verktaka má finna helstu bakhjarla þeirra sem nú ráða á Alþingi,“ skrifar hann.Andri Snær Magnasonvísir/valliSkreyta sig með nátthúfum lángafanna Lausnin sé ekki afturhvarf til fortíðar, heldur eigi að gefa því góða fólki sem hér sé að gera sitt besta. Í því samhengi rifjar hann upp samkeppni á vegum Reykjavíkurborgar um nýtt ráðhús við tjörnina. Höfundar sigurtillögunar voru þau Steve Christer og Margrét Harðardóttir, bæði 27 ára þegar þau fengu verkið í hendurnar. Eflaust sé það draumur margra 27 ára arkítekta að spreyta sig á slíku stórhýsi, og vísar í orð Margrétar við vígslu ráðhússins árið 1992:„Sumir virtust eiga þá ósk heitasta, að byggingarlistin tæki stefnuna rakleitt aftur til fortíðar. Þetta er algengt fyrirbæri og e.t.v. afleiðing þess, að menn átta sig ekki á því, að ástæða þess, að margar af eldri byggingum okkar eru svo fallegar, er einmitt sú, að þá vönduðu menn sig sem bezt þeir gátu. Nú leyfir peningavélin ekki, að menn geri sitt bezta. Þetta hefur leitt af sér hræðslu gagnvart öllu því, sem nýtt er. Halldór Laxness kallaði þetta „að skreyta sig með nátthúfum lángafanna“ og taldi það vitna um hnignun þjóðernis, þegar menn leituðu einkenna sinna mörg hundruð ár aftur í tímann. Það er jafn hættulegt að gerast þræll fortíðarinnar og að glata virðingu sinni og þekkingu á því, sem á undan er gengið. Ég tel mig geta fullyrt fyrir hönd allra, sem nálægt byggingu Ráðhúss Reykjavíkur hafa komið, að þeir eru þakklátir fyrir að hafa fengið, e.t.v. í eina skiptið á ævinni, að sýna fagmennsku í allri sinni fegurð.“ Þá segir Andri að Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra, hefði líklega aldrei dottið í hug að ákveða sjálfur hvernig húsið ætti að líta út. Pistil Andra Snæs í heild má lesa hér.
Tengdar fréttir 100 ára teikning svarar ekki endilega þörfum nútímans Arkitektafélag Íslands segir stjórnvöld í engu hafa svarað ósk félagsins um að samtal eigi sér stað um nýja skrifstofubyggingu Alþingis sem síðan verði boðin út. 26. desember 2015 18:36 Forsætisráðherra ítrekar byggingahugmyndir sínar á jólakorti Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur sem nýlega gaf út bókina Mótun framtíðar hælir forsætisráðherra fyrir hughrekki í skipulagsmálum. 25. desember 2015 18:31 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
100 ára teikning svarar ekki endilega þörfum nútímans Arkitektafélag Íslands segir stjórnvöld í engu hafa svarað ósk félagsins um að samtal eigi sér stað um nýja skrifstofubyggingu Alþingis sem síðan verði boðin út. 26. desember 2015 18:36
Forsætisráðherra ítrekar byggingahugmyndir sínar á jólakorti Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur sem nýlega gaf út bókina Mótun framtíðar hælir forsætisráðherra fyrir hughrekki í skipulagsmálum. 25. desember 2015 18:31