Aron kveður með titli í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. júní 2015 16:00 Andy Schidt var kjörinn bestur en Aron verður meistari. vísir/getty
Lokaumferðin í þýsku 1. deildinni í handbolta fer fram í heild sinni í kvöld, en allir leikirnir hefjast klukkan 18.00. Nokkuð ljóst er að Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, fagnar meistaratitlinum í kvöld, en ekkert á að geta komið í veg fyrir það. Kiel er með tveggja stiga forskot á Rhein-Neckar Löwen fyrir lokaumferðina og nægir því jafntefli gegn Lemgo í kvöld til að gulltryggja titilinn. Lemgo er í 14. sæti með 27 stig. Kiel er með svo mikið betri markatölu að Alexander Petersson, Stefán Sigurmannson og félagar eiga í raun ekki fræðilegan möguleika. Til að Ljónin verði meistarar þurfa þau að vinna og Kiel að tapa. Þá þarf Löwen að vinna upp 25 marka mun sem Kiel hefur í forskot. Löwen á fyrir höndum erfiðan útileik gegn lærisveinum Geirs Sveinssonar í Magdeburg, en þeir eru búnir að tryggja sér Evrópusæti. Frábærlega gert hjá Geir á sinni fyrstu leiktíð. Vinni Kiel í kvöld, eins og allt bendir til, fagnar liðið sínum 20. meistaratitli í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Útsending hefst klukkan 17.55. Þetta er síðasti leikur Arons Pálmarssonar sem leikmaður Kiel, en farsælli dvöl hans hjá liðinu lýkur eftir tímabilið. Hann gengur í raðir Veszprém í Ungverjalandi í sumar. Aron verður meistari í fimmta sinn í kvöld og Alfreð í sjötta sinn, en hann er búinn að vinna Þýskalandsmeistaratitilinn fimm sinnum á fyrstu sex árunum hjá Kiel.
Handbolti Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira