Get vel gengið og hlaupið með gervifót Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. mars 2015 11:00 „Ég skíða á öðrum fæti á venjulegu skíði en nota öðruvísi skíðastafi en aðrir skíðamenn. Æfi samt og keppi með jafnöldrum mínum.“ Vísir/Valli
Hinn 14 ára Garðbæingur Hilmar Snær Örvarsson hefur bara einn venjulegan fót en lætur það ekki hindra sig í skíðaiðkun eða golfi heldur æfir af kappi. Hver eru þín helstu áhugamál, Hilmar Snær? Ég er með tvö aðaláhugamál þessa stundina, það eru skíði og golf. Ég er mest á skíðum á veturna og á sumrin vil ég helst bara vera í golfi alla daga. Ég æfi skíði með skíðafélagi Víkings og golf hjá GKG. Hvar æfir þú skíðaíþróttina? Við æfum í rauninni alltaf þegar það er opið í Bláfjöllum en stundum förum við í æfingaferðir út á land og til útlanda. Stundum eru æfingar alla daga vikunnar en þegar veðrið er vont eru engar æfingar. Hvert hefur þú farið til útlanda að skíða? Ég hef farið til Ítalíu, Austurríkis, Noregs og Hollands í keppnis- og æfingaferðir. Segðu okkur hvað greinir þig frá flestum öðrum skíðaiðkendum? Ég skíða á öðrum fæti á venjulegu skíði en nota öðruvísi skíðastafi en aðrir skíðamenn. Æfi samt og keppi með jafnöldrum mínum. Keppir þú að einhverju sérstöku marki í skíðaíþróttinni? Ég er að keppa að því að ná sem bestum árangri í keppnum hér heima, ég keppti síðasta haust í fyrsta skipti með fötluðum unglingum og mér gekk ágætlega þar. Draumurinn væri þó að komast á Vetrarólympíuleika fatlaðra sem verða í S-Kóreu 2018. Vonandi tekst það. Hvernig misstir þú fótinn? Ég fékk krabbamein í vinstri fótinn þegar ég var átta ára gamall. Því þurfti að taka hann en ég get vel gengið og hlaupið með gervifót. Hvaða áhugamál kemur í þriðja sæti? Ég er svo mikið í skíðunum eða golfinu að ég hef ekki tíma fyrir fleiri áhugamál, en mér finnst þó mjög gaman að „tsjilla“ með vinum mínum úr skólanum eða skíðakrökkunum. Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Ég hef ekkert pælt í því.
Mest lesið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir Sonur Walter White er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira