Birna Berg og Einar tryggðu Molde sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti Anton Ingi Leifsson skrifar 15. mars 2015 20:28 Birna og Einar fagna sigrinum. vísir/anton
Molde tryggði sér sæti í norsku úrvalsdeild kvenna í handbolta með sigri á botnliði Randesund, 33-21, í kvöld. Birna Berg Haraldsdóttir leikur með Molde, en Einar Jónsson þjálfar liðið. Fyrir leik var ljóst að Molde þyrfti að ná í eitt stig til að tryggja sér sæti í efstu deild. Liðið var að mæta versta liði deildarinnar og því líklegt að um formsatriði yrði að ræða. Leikurinn tafðist um tvo tíma vegna þess að flugvél sem átti að ferja Molde til Randesund bilaði og því þurfti að seinka leiknum. Það virtist ekki hafa áhrif á Birnu því hún skoraði þrjú fyrstu mörk Molde í leiknum og fjögur af fyrstu fimm. Molde var með öll tök á vellinum og leiddi nánast mest allan fyrri hálfleikinn. Eftir að Birna skoraði fjögur af fyrstu fimm mörkunum var hún tekin úr umferð allan leikinn. Staðan í hálfleik var svo 15-12, Molde í vil. Síðari hálfleikurinn var svo ekkert spennandi. Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum leiddu Molde með átta mörkum, 24-16, og einungis spurning hversu stór sigurinn yrði - ekki hvoru megin hann myndi enda. Lokatölur urðu svo tólf marka sigur Molde, 33-21. Birna Berg skoraði fjögur mörk fyrir Molde, en öll mörk Hafnfirðingsins komu á fyrsta stundarfjórðungnum. Ljóst er að um magnaðan árangur er að ræða. Molde kom upp úr annari deildinni í fyrra og er nú komið í deild þeirra bestu. Einar Jónsson að gera magnaða hluti og stýrð liðinu upp um tvær deildir á tveimur árum. Næsta ár verður fyrsta árið sem Molde á lið í úrvalsdeild kvenna í handbolta. Ekki er ljóst hvar Birna spilar á næsta tímabili, en hún er á láni hjá Molde. Hún er á mála hjá Savehöf fra Svíþjóð, en líklegt er að hún fari frá sænsku meisturunum í sumar. Óvíst er hvert hún sé að fara.
Handbolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti „Slakiði á“ Fótbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira