Semja tónlist um matargerð Jóhann Óli Eiðsson skrifar 23. janúar 2015 08:58 Hljómsveitin er með eindæmum þjóðleg. Vísir/Stefán
Það sem úti frýs er glæný hafnfirsk hljómsveit. Fyrsta lag hennar, Haltu kjafti, kemur út í dag, á bóndadaginn, sem jafnframt er fyrsti dagur þorra. „Okkur hefur þótt vanta talsvert upp á hressileg þorralög sem hægt er að syngja með og skemmta sér,“ segir Heiðar Örn Kristjánsson, oft kenndur við Botnleðju og Pollapönk, en hann syngur með sveitinni. „Lagið heitir Haltu kjafti og fjallar um svið.“ Með Heiðari í sveitinni eru gítarleikararnir Þröstur Harðarson og Magnús Leifur Sveinsson og bassaleikarinn Viðar Hrafn Steingrímsson. Þórhallur Stefánsson í Lights on the Highway og STÓNS lemur húðir. „Stefnan er sett á að gefa út sannkallaðan matardisk í haust,“ segir Heiðar. Með matardisk á hann við að konseptplata sé á leiðinni. Haltu kjafti sé í raun fyrsta smáskífa þeirrar plötu. Samkvæmt Heiðari verður rótgrónum íslenskum mat gert hátt undir höfði á plötunni. Nefnir hann þar til sögunnar rétti á borð við hakkabuff, kjötsúpu og svið. „Hugmyndin er sú að við syngjum um aðferðafræðina og uppskriftirnar fylgja með plötunni. Á þann veg getur fólk hlustað á plötuna, fylgt uppskriftinni og matreitt lögin okkar hvert á sinn hátt,“ segir Heiðar og hlær. Upptökur á laginu fóru fram í stúdíóinu Aldingarði sem meðlimirnir Magnús og Þórhallur eiga og Heiðar segir það, ásamt Hafnarfirði, vera bækistöðvar hljómsveitarinnar. Aðspurður segir hann að enn sé ekki komið á hreint hvernig tónleikahaldi verður háttað. Hljómsveitin sé enn svo ný en það ætti að skýrast á næstu vikum og þegar nær dregur plötunni. Hægt er að nálgast lagið á vefnum Tonlist.is.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Ekkert offors hjá Fors Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Menningarsprautur í hvísluleik Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Sjá meira