Frozen-æðið heldur áfram Kjartan Atli Kjartansson skrifar 14. mars 2015 12:00 Gríðarlegar vinsældir Frozen er tekjuhæsta teiknimynd allra tíma
Virði hlutabréfa í fyrirtækjum sem tengjast Frozen-teiknimyndunum jókst strax í kjölfar tilkynningar um að framhaldsmynd í fullri lengd væri á leiðinni. Hlutabréf í Disney höfðu hækkað um 4,2 prósent í lok fimmtudagsins, en þá var tilkynnt um hina nýju mynd. Virði hlutabréfa í leikfangafyrirtækinu Mattel hækkaði um fimm prósent í kjölfar tilkynningarinnar. Ný stuttmynd um Önnu og Elsu, aðalpersónur Frozen, var frumsýnd á undan nýrri Disney-mynd um Öskubusku um allan heim, nú um helgina. Hér á landi er stuttmyndin, sem ber titilinn Frozen Fever, sýnd með íslensku tali og er talsetningin í höndum þeirra sömu og talsettu fyrri myndina. Áfram verður Ágústa Eva Erlendsdóttir í hlutverki Elsu. Hún segir mikla vinnu hafa farið í fyrri myndina, en hún hafi notið þess í botn. „Vinnan á bak við svona þýðingar er mikil og vandað til allra verka,“ útskýrir hún. Ágústa Eva segir þetta gríðarmikla Frozen-æði hafa komið sér nokkuð á óvart. „Þegar ég fór í prufur fyrir hlutverkið óraði mig ekki fyrir þessu. Myndin hefur algjörlega hitt í mark hjá krökkum. Sem er frábært, því hún er með svo fallegan boðskap. Vináttan er svo ráðandi og hvar er hægt að finna betri vináttu en hjá systur sinni?“Ágústa Eva Erlendsdóttir.Ágústa segir enn fremur gaman að geta talað fyrir jafn sterka kvenhetju og Elsa er. „Ég held að það sé hollt fyrir krakka að sjá öðruvísi hetju en í svo mörgum öðrum teiknimyndum. Segja má að Elsa sé mannleg ofurhetja sem búi yfir ofurkröftum.“ Talsetning myndarinnar fer fram í fyrirtækinu Stúdíó 1. Þar heldur Björn Ármann Júlíusson á spöðunum. „Þetta er fjölskyldufyrirtæki, sem faðir minn rak áður. Við talsetjum allar myndir frá Disney og Pixar,“ útskýrir hann. Björn segir mikla vinnu fara í þýðingu á myndunum á borð við Frozen, en tíminn sé oft knappur og handtökin þurfi að vera snör. „Þetta byrjar á því að þýðandi snarar handritinu yfir á íslensku. Síðan þarf að finna aðalleikara og þá að talsetja myndina. Oft eru myndirnar langt komnar í framleiðsluferli þegar við fáum þær og því þurfum við að vinna hratt.“ Hann segir að fulltrúar Disney fylgist vel með framkvæmd þýðingarinnar og fái til dæmis upptöku af öllum sem koma til greina í aðalhlutverkin. Tilkynnt var um Forzen 2 á Twitter-síðu Disney á fimmtudaginn. Þar kom fram að myndin yrði í leikstjórn Chris Buck og Jennifer Lee, þeirra sömu og gerðu fyrri myndina. „Loksins get ég sagt frá því að Frozen 2 er á leiðinni,“ sagði Lee á Twitter-síðu sinni þann sama dag. Engar frekari upplýsingar um myndina hafa verið gefnar út. Ekki liggur fyrir hvenær hún kemur út eða hver söguþráðurinn verður. En reiknað er með að hinar miklu vinsældir Önnu, Elsu, Ólafs og Sveins haldi áfram, enda er fyrri myndin tekjuhæsta teiknimynd allra tíma.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira