Fordómar, fátækt og fjárlög Þorbera Fjölnisdóttir og Sigríður Hanna Ingólfsdóttir skrifar 27. október 2015 07:00 Á hverjum degi lendir fólk í áföllum (s.s. heilablóðfalli eða slysi) sem valda því að fólk verður að reiða sig á hið opinbera með framfærslu. Það geta því allir komist í þá stöðu að þurfa að sækja um örorkulífeyri. Þegar við missum starfsgetuna vegna afleiðinga sjúkdóma eða slysa, viljum við hafa öryggisnet sem grípur okkur. Hvað er það í samfélagi okkar sem gerir það að verkum að fólk sem þarf að reiða sig á framfærslu frá hinu opinbera sökum afleiðinga alvarlegra sjúkdóma, slysa eða meðfæddra skerðinga er gert að lifa við fátæktarmörk? Er það vanþekking á stöðu örorkulífeyrisþega?Staðalmyndir og fordómar Skerðingar eru í mörgum tilvikum ósýnilegar. Tæp 40% örorkulífeyrisþega eru með geðraskanir og þær sjást yfirleitt ekki utan á fólki. Annar stór hópur öryrkja er með stoðkerfissjúkdóma (s.s gigt) og eru þeir sjaldnast sýnilegir. Staðalmynd örorkulífeyrisþega er hins vegar einstaklingur með sýnilega, líkamlega skerðingu – ósjaldan í hjólastól. Mjög algengt er að örorkulífeyrisþegar, sem eru með ósýnilegar skerðingar og passa því ekki inn í staðalmyndina, upplifi fordóma á þann hátt að réttmæti örorkumatsins er dregið í efa af leikmönnum. Eins eru sumir sjúkdómar þess eðlis að fólk er í mjög misgóðu ástandi eftir dögum. Einstaklingur þarf kannski einn daginn að nota hjólastól en ekki þann næsta. Það velur enginn að verða örorkulífeyrisþegi. Læknar úrskurða um örorkumat að undangengnu ákveðnu ferli. Að upplifa fordóma og skilningsleysi umhverfisins ofan á heilsubrest veldur mikilli vanlíðan. Fólki á ekki að finnast það þurfa að réttlæta það gagnvart umhverfinu að hafa fengið örorkumat. Flestöll tengjumst við fólki sem hefur annaðhvort þurft að draga sig frá vinnumarkaði eða draga verulega úr atvinnuþátttöku vegna sjúkdóma eða slysa eða hefur aldrei fengið tækifæri til þátttöku.Sveltistefna stjórnvalda Fjármálaráðherra hefur nýlega réttlætt lágar upphæðir lífeyrisgreiðslna almannatrygginga með því að það þurfi að vera hvatar í kerfinu til að fólk fari í vinnu. Ekki er hægt að skilja orð ráðherrans öðruvísi en svo að það eigi að svelta örorkulífeyrisþega út á vinnumarkaðinn. Ef fólk getur ekki framfleytt sér af örorkugreiðslunum, eigi það að fara að vinna til að bæta fjárhaginn. Lítum nánar á þetta. Í fyrsta lagi þá verður alltaf ákveðinn hluti örorkulífeyrisþega sem hefur enga eða mjög takmarkaða starfsgetu og er því algerlega útilokaður frá atvinnuþátttöku. Þessi hópur þarf að hafa tekjur til að geta lifað mannsæmandi lífi. Í öðru lagi þá geta miklar tekjutengingar í kerfinu valdið því að lágar viðbótartekjur bæta litlu eða engu við ráðstöfunartekjur lífeyrisþega. Í þriðja lagi eru mjög fá störf við hæfi í boði á vinnumarkaðinum, s.s. hlutastörf og störf þar sem tekið er tillit til sveiflna sem fylgja ýmsum sjúkdómum. Þannig að þó fólk hafi getu til að vinna hluta úr degi, þá eru störfin einfaldlega ekki til. Rannsóknir sýna að lágar greiðslur kerfisins til framfærslu virka ekki hvetjandi heldur þvert á móti, þá halda þær fólki í fátæktargildru og félagslegri einangrun. Það þarf því að hækka upphæðir örorkugreiðslna almannatrygginga verulega og afnema þær miklu tekjutengingar sem eru í kerfinu. Í máli fjármálaráðherra í umræðu á Alþingi um að lífeyrir almannatrygginga hækki til samræmis við hækkun lægstu launa kemur fram að slíkt yrði til þess að fólk hefði frjálst val um hvort það er á bótum eða úti á vinnumarkaði. Það er algerlega fráleitt að heimfæra markaðslögmál um framboð og eftirspurn á skerðingar eða örorku. Það er ekki hægt að velja að fá gigt eða verða fyrir heilaskaða. Örorkugreiðslur sem ekki duga til framfærslu draga ekki úr tíðni sjúkdóma og slysa.Tækifæri þingheims með fjárlögum 2016 Fjárlög 2016 eru nú til umræðu á Alþingi. Því hefur þingheimur tækifæri til að bæta verulega kjör lífeyrisþega öllu samfélaginu til hagsbóta. Þær prósentuhækkanir sem nefndar hafa verið duga engan veginn til að ná því markmiði að lífeyrisþegar geti lifað mannsæmandi lífi. Almannatryggingar eru öryggisnet okkar allra og einn af mælikvörðum á velferðarsamfélagið. Hagsmunir fatlaðs fólks eru hagsmunir okkar allra því saman byggjum við eitt samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar skrifar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson skrifar Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Stefna í fíkniefnamálum á villigötum? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sátt í september verður að ná til allra Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun