Lífið

Sækýrnar fá verðlaun fyrir lengsta tímann yfir Ermasundið

Marín Manda skrifar
Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helgadóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og Sigrún Þuríður Geirsdóttir.
Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helgadóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og Sigrún Þuríður Geirsdóttir.
Sækýrnar syntu yfir Ermarsundið í fyrra á 19 klukkustundum, 38 mínútum og 8 sekúndum og fengu verðlaun fyrir lengsta tímann.

„Þetta kom okkur rosalega á óvart. Við fengum að vita frá liðsstjóranum okkar að það væri pakki sem biði okkar frá Dover eftir uppskeruhátíð sem haldin var á dögunum. Við héldum fyrst að við hefðum bara gleymt einhverju í bátnum eða á hótelinu en svo bara fengum við þessi rosa fínu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður Geirsdóttir sem er ein af sex konum í sjósundhópnum Sækúnum.

Ásamt henni í Sækúnum eru þær Anna Guðrún Jónsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helgadóttir og Birna Hrönn Sigurjónsdóttir. Í fyrra fóru Sækýrnar utan til að synda Ermarsundið og kláruðu sundið með lengsta tímann í sjónum sem voru rúmlega 19 klukkustundir. Það kom þeim því algjörlega í opna skjöldu að fá verðlaun fyrir lengsta tímann.

„Þeir hjá CS&PS telja það jafnmerkilegt að vera lengi í sjónum eins og að vera fljótur, því að vera lengi krefst gríðarlegs þreks, viljastyrks og hugrekkis. Þeim fannst þetta svo mikill dugnaður og elja hjá okkur svo að við fengum þessi fallegu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður og það vottar fyrir stolti í raddblænum.

„Það er alltaf rosaleg áskorun fyrir mann að fara í sjóinn en þetta hefur svo góð áhrif á líkama og sál. Það er ofboðslega góður lækningamáttur í þessu sundi og við lítum á okkur sem góðar fyrirmyndir fyrir aðra því maður getur allt ef maður hefur trú á því.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.