Sækýrnar fá verðlaun fyrir lengsta tímann yfir Ermasundið Marín Manda skrifar 14. apríl 2014 11:30 Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helgadóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Birna Hrönn Sigurjónsdóttir, Anna Guðrún Jónsdóttir og Sigrún Þuríður Geirsdóttir.
Sækýrnar syntu yfir Ermarsundið í fyrra á 19 klukkustundum, 38 mínútum og 8 sekúndum og fengu verðlaun fyrir lengsta tímann. „Þetta kom okkur rosalega á óvart. Við fengum að vita frá liðsstjóranum okkar að það væri pakki sem biði okkar frá Dover eftir uppskeruhátíð sem haldin var á dögunum. Við héldum fyrst að við hefðum bara gleymt einhverju í bátnum eða á hótelinu en svo bara fengum við þessi rosa fínu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður Geirsdóttir sem er ein af sex konum í sjósundhópnum Sækúnum. Ásamt henni í Sækúnum eru þær Anna Guðrún Jónsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Kristbjörg Valgarðsdóttir, Kristín Helgadóttir og Birna Hrönn Sigurjónsdóttir. Í fyrra fóru Sækýrnar utan til að synda Ermarsundið og kláruðu sundið með lengsta tímann í sjónum sem voru rúmlega 19 klukkustundir. Það kom þeim því algjörlega í opna skjöldu að fá verðlaun fyrir lengsta tímann. „Þeir hjá CS&PS telja það jafnmerkilegt að vera lengi í sjónum eins og að vera fljótur, því að vera lengi krefst gríðarlegs þreks, viljastyrks og hugrekkis. Þeim fannst þetta svo mikill dugnaður og elja hjá okkur svo að við fengum þessi fallegu verðlaun,“ segir Sigrún Þuríður og það vottar fyrir stolti í raddblænum. „Það er alltaf rosaleg áskorun fyrir mann að fara í sjóinn en þetta hefur svo góð áhrif á líkama og sál. Það er ofboðslega góður lækningamáttur í þessu sundi og við lítum á okkur sem góðar fyrirmyndir fyrir aðra því maður getur allt ef maður hefur trú á því.“
Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira