Palli pissar sýrupissi 23. mars 2014 09:39 Vinir Birgir Steinn, Úlfur Páll og Bjartur Eldur eru bekkjarfélagar í Grandaskóla og spila í sama flokki í fótbolta. Fréttablaðið/Stefán
Þeir eru allir níu ára – að verða tíu og eru nemendur í Grandaskóla. Skemmtilegast af öllu finnst þeim að spila fótbolta og eru allir í KR. Birgir Steinn heldur með Manchester United í ensku deildinni en Bjartur Eldur með Arsenal. Þegar Úlfur Páll, sem er á milli hinna tveggja, nefnir United sem sitt uppáhaldslið fær hann olnbogaskot frá Bjarti og flýtir sér að skipta sér í miðju með fingri. Þetta eru miklir grínkarlar. Þeir fóru á myndina Antboy á föstudagskvöldið. Hún var upphafsmynd alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar í Bíói Paradís og þeir eru sammála um að hún hafi verið skemmtileg. Bjartur: „Þetta var dönsk mynd en Antboy 2 er í tökum í Þýskalandi.“ Birgir: „Það strákur í henni sem heitir Óskar í alvörunni en Palli í myndinni.“ Bjartur: „Svo er 12 ára íslenskur strákur sem heitir Ágúst sem talar inn á myndina.“ Úlfur: „Hann Palli fær ofurkrafta sem maurarnir hafa af því einn maur bítur hann.“ Bjartur: „Já, og hann verður svo sterkur að hann getur haldið á margfaldri þyngd sinni.“ Birgir: „Og hann pissar sýrupissi.“ Bjartur: „Þannig að klósettið splundrast.“ Úlfur: „Svo bjargar hann stelpu.“ Spurðir hvort þeir ætli að fara á fleiri myndir á hátíðinni eru þeir allir jákvæðir fyrir því. Það kemur ekki á óvart að mestur áhuginn er á að fara á fótboltamynd. Birgir: „Sú mynd er um strák sem fer til Manchester United – besta liðsins sko…“ Bjartur: „…nei, ömurlegasta liðsins. En strákurinn kemur til að þjálfa upp nýtt krakkalið hjá United af því aðalliðið hafði lent í flugslysi. Þar dóu sumir en hann hafði lifað af.“ Skyldu þeir sjálfir hafa áhuga á að verða leikarar í framtíðinni? Úlfur: „Nei, ég ætla að verða fótboltaspilari, söngvari og bóndi.“ Bjartur: „Ég ætla bara að vinna á kassa í Bónus.“ Birgir: „Og ég ætla að verða fótboltamaður.“ Þar með er viðtalinu lokið og strákarnir skunda á æfingu hjá KR.
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira