Schwalb: Ég er klár í slaginn á ný Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2014 22:45 Schwalb gerði Hamburg að Evrópumeisturum 2013. Vísir/Getty
Martin Schwalb, fyrrverandi þjálfari Hamburg, segir að hann sé klár í slaginn á ný eftir hjartaáfallið sem hann fékk fyrir þremur mánuðum. Í viðtali við þýska tímaritið Sport-Bild segir Schwalb að hann hefði haft mikinn áhuga á að taka við þýska landsliðinu í handbolta. „Ég hefði verið meira en til í að taka við landsliðinu,“ sagði Schwalb og bætti við: „Ég er tilbúinn að snúa aftur í þjálfun að þessu tímabili loknu.“ Schwalb var sagt upp störfum hjá Hamburg 3. júlí síðastliðinn, sama dag og hann fékk hjartaáfallið. Hann gekkst undir þriggja tíma aðgerð og segist vera heppinn að vera á lífi. Schwalb segist vera við ágæta heilsu í dag, en hann hætti að reykja eftir hjartaáfallið. Schwalb, sem starfar nú sem álitsgjafi í sjónvarpi, er hissa á að það hafi ekki verið haft samband við hann eftir að Martin Heuberger var rekinn úr starfi landsliðsþjálfara Þýskalands. „Mér finnst það svolítið skrítið að það hafi ekki verið rætt við mig,“ sagði Schwalb, en sem kunnugt er var Dagur Sigurðsson ráðinn þjálfari þýska landsliðsins.
Handbolti Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira