

Er Sjálfstæðisflokknum treystandi?
Með þessu freistaði hann þess að mana forystu Sjálfstæðisflokksins til að standa við skilyrðislaust loforð um þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB, á fyrri hluta kjörtímabilsins, en það loforð var forsenda margra kjósenda fyrir því að ljá Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt.
Nei, honum er ekki treystandi
Nú er það endanlega orðið ljóst að af þjóðaratkvæðinu verður ekki. Sjálfstæðisflokknum er ekki treystandi til að standa við loforðin sem forystan gaf þegar reynt var að friða ESB-sinna innan flokksins í aðdraganda kosninga.
Framsóknarflokkurinn hefur nú endanlega blásið af kosningar um áframhald viðræðna við ESB án þess að sjálfstæðismenn hafi hreyft legg né lið og látið það yfir sig ganga andmælalaust. Svo voru einhverjir sem kusu Sjálfstæðisflokkinn út á slagorðið „engar nefndir, bara efndir“ en það gilti bara fyrir útgerðarmenn, ekki almenning.
Já, honum er treystandi
Í borgarstjórnarkosningum framundan hefur oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík freistað þess að marka flokknum sérstöðu með því að lýsa því yfir að tími samræðustjórnmála sé liðinn. Nú skuli fara í hart og í engu leitast við að ná samstöðu um stór mál sem smá heldur muni allir hér eftir fá að vita hvar Davíð keypti ölið.
Þetta er all sérstæð yfirlýsing þar sem flestir töldu að gömlu aðferðirnar við stjórn lands og borgar, þar sem „freki kallinn“ (sem Jón Gnarr hefur lýst svo ágætlega) réði för, hefðu gengið sér til húðar. Almennt var talið að meðal þess sem við hefðum átt að læra af hruninu væri að einstefnustjórnmál „freka karlsins“ hefðu átt sinn hlut í að leiða okkur fram af bjargbrúninni og nær væri að stjórnmálamenn töluðu saman og freistuðu þess að ná breiðri samstöðu um sem flest mál.
Nú ætla sjálfstæðismenn að taka upp gömlu gildin. Reykjavíkurborg verður enn á ný vettvangur fyrir litla „freka kalla“ sem ætla sér að komast til æðri metorða innan „Flokksins“. Hagsmunir borgarbúa skipta litlu þegar slíkur frami er annars vegar og tilgangurinn helgar meðalið.
Flokkur svefngengla?
Deilt er um hver íslensku stjórnmálaflokkanna eigi stærstan hóp „svefngengla vanans“, þ.e. þeirra sem kjósa „flokkinn sinn“ af gömlum vana í þeirri trú að þannig séu þeir í raun ópólitískir. Þetta hefur enginn orðað betur en Haukur pressari, einn þeirra karaktera sem settu svip á Reykjavík á síðustu öld og orðaði það svo: „Ég algjörlega ópólitískur en kýs alltaf Sjálfstæðisflokkinn.“
Skoðun

Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland
Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar

Til hamingju með sjómannadaginn
Sigurjón Þórðarson skrifar

Er ekki tími til kominn að tengja?
Kristín María Birgisdóttir skrifar

Barnasáttmáli fyrir öll börn
Guðný Björk Eydal,Paola Carenas skrifar

Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka
Erna Bjarnadóttir skrifar

Bensínstöðvardíll og Birkimelur
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Trollveiðar og veiðiráðgjöf
Magnús Jónsson skrifar

Gríðarlegir hagsmunir í húfi
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Skynsamleg forgangsröðun fjár
Ragnhildur Jónsdóttir skrifar

Eins skýrt og það verður
Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar

Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Að sameinast fjölskyldu sinni
Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar

Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78
Snorri Másson skrifar

Eru forvarnir í hættu?
Dagbjört Harðardóttir skrifar

Tveir alþingismenn og Gaza
Sverrir Agnarsson skrifar

Hver borgar fyrir ódýrar lóðir?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Erum við að lengja dauðann en ekki lífið?
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu
Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar

Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Verður það að vera Ísrael?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Dýravernd - frumbyggjahættir
Árni Stefán Árnason skrifar

Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota
Magnús Guðmundsson skrifar

Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi
Snorri Sturluson skrifar

Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu
Guðjón Sigurbjartsson skrifar

Sjómenn til hamingju!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Leyfum mennskunni að sigra
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Fjölskyldan fyrst
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar