Draugurinn kveðinn niður? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júní 2014 10:55 Juan Alberto Schiaffino jafnar metin í úrslitaleik Brasilíu og Úrúgvæ á HM 1950. Vísir/Getty
Sunnudagurinn 16. júlí árið 1950. Það sem átti ekki að geta gerst gerðist. Úrúgvæ er heimsmeistari, ekki Brasilía. Meðan nýkrýndu heimsmeistararnir fagna tínast áhorfendur af Maracanã-vellinum í Ríó de Janeiro, steinrunnir, eins og þeir hafi séð draug. Í sumar á brasilíska landsliðið loks möguleika á að kveða niður þennan draug sem hefur ásótt Brasilíu í 64 ár. Framan af gekk allt svo vel. Brasilía byrjaði HM 1950 á því að vinna Mexíkó 4-0, gerði svo 2-2 jafntefli gegn Sviss og tryggði sér svo þátttökurétt í úrslitariðlinum með 2-0 sigri á Júgóslavíu. Þegar þangað var komið settu Brasilíumenn í annan gír. Liðið valtaði yfir Svíþjóð 7-1 og Spán 6-1. Framherjatríóið frábæra, Zizinho, Jair og Ademir, var óstöðvandi, líkt og það hafði verið ári fyrr þegar Brasilía vann Suður-Ameríkukeppnina, þar sem liðið skoraði 46 mörk í átta leikjum á leið sinni að titlinum. Brasilíu dugði jafntefli gegn Úrúgvæ í lokaleik úrslitariðilsins til að verða heimsmeistari í fyrsta sinn. Það gerðu allir ráð fyrir sigri Brasilíu og leikurinn við Úrúgvæ átti að vera lítið annað en formsatriði. Á forsíðu morgunútgáfu dagblaðsins O Mundo mátti finna mynd af brasilíska liðinu undir fyrirsögninni "Þetta eru heimsmeistararnir". Eftir að hafa rekið augun í blaðið að morgni leikdags keypti fyrirliði Úrúgvæja, Obdulio Varela, eins mörg eintök af því og hann gat, breiddi úr þeim á baðherbergisgólf og fyrirskipaði svo samherjum sínum að míga á blöðin. Borgarstjórinn í Ríó de Janeiro, Angelo Mendes de Moraes, sat heldur ekki á sér í ræðu fyrir leikinn. "Þið eigið ykkur enga jafnoka á jörðinni," sagði Moraes við mannfjöldann sem var saman kominn á Maracanã. "Ekkert lið kemst með tærnar þar sem þið hafið hælana. Ég hylli ykkur þegar sem heimsmeistara." Og þegar 24 mínútur voru til leiksloka benti fátt til annars en að sú yrði raunin. Heimamenn leiddu 1-0 með marki Friaça og allt var á áætlun. En þá fór lestin út af sporinu. MaracanazoÚr leiknum fræga 1950.Vísir/GettyJuan Alberto Schiaffino jafnaði leikinn á 66. mínútu eftir sendingu frá kantmanninum Alcides Ghiggia. Það sló þögn á Maracanã. Samkvæmt opinberum tölum voru 173.850 áhorfendur á vellinum þennan dag, en þeir voru að öllum líkindum rúmlega 200.000. Ghiggia, eini eftirlifandi leikmaðurinn frá leiknum 1950, var svo aftur á ferðinni 13 mínútum seinna. Hann skiptist á sendingum við Julio Pérez á hægri kantinum og lék áfram. Markvörðurinn Moacir Barbosa bjóst við fyrirgjöf og skildi eftir svæði á nærstönginni sem Ghiggia nýtti sér og skoraði sigurmarkið. Úrúgvæ hafði tekist hið ómögulega, að tryggja sér heimsmeistaratitilinn á kostnað heimamanna. Tapið hafði djúpstæð áhrif á brasilísku þjóðarsálina og margir líta á það sem stærsta áfall, ekki bara í sögu knattspyrnulandsliðsins, heldur einnig í sögu Brasilíu. Ósigurinn gegn Úrúgvæ 1950 var meiriháttar skellur fyrir land sem var á uppleið. Efnahagurinn var betri, lýðræðisumbótum hafði verið komið á og Brasilía var smám saman að nútímavæðast. Og eins og fram kemur í bók Jons Spurling, Death or Glory: The Dark History of the World Cup, var Maracanã eins konar tákn fyrir hina nýju Brasilíu. Tapinu fyrir Úrúgvæ hefur, heldur ósmekklega, verið líkt við morðið á John F. Kennedy, árásina á Hiroshima og einn viðmælandi Spurlings í Death or Glory, Carlos að nafni, líkir tapinu við Titanic-slysið: "Það eru margir samnefnarar með þessu tvennu," segir Carlos. "Eftirvæntingin í loftinu, ofmatið, og tilfinningin fyrir því að vera ósigrandi. Svo dundi hið óvænta áfall yfir og því fylgdu ásakanir, leit að sökudólgum, deilur og ótal bækur og kvikmyndir þar sem atburðurinn var skoðaður frá ólíkum hliðum. Maracanazo [eins og tapið gegn Úrúgvæ er jafnan kallað] var okkar Titanic." Markvörðurinn sem grætti heila þjóðJules Rimet, forseti FIFA, afhendir Obdulio Varela, fyrirliða Úrúgvæ, styttuna sem var nefnd í höfuðið á honum.Vísir/GettyEftir leikinn beindust spjótin aðallega að varnarmönnunum Bigode og Juvenal og markverðinum Barbosa - einu blökkumönnunum í liði Brasilíu - en sá síðastnefndi var öðrum fremur gerður að blóraböggli fyrir tapinu. Hann átti sér aldrei viðreisnar von eftir leikinn. Hvert sem Barbosa fór var hann með einum eða öðrum hætti minntur á mistökin sem kostuðu Brasilíu heimsmeistaratitilinn. Eitt atvik, sem átti sér stað 20 árum eftir Maracanazo, sat lengur í markverðinum en önnur. Barbosa var þá staddur í verslun þegar hann heyrði konu segja við ungan son sinn: "Sjáðu! Þarna er maðurinn sem fékk alla Brasilíu til að bresta í grát." Það var einnig litið á Barbosa sem eins konar óheillakráku, en árið 1993 var honum meinaður aðgangur að æfingu brasilíska landsliðsins því hann þótti boða ógæfu. Barbosa lést í fátækt (eins og svo margir þeirra sem tóku þátt í umræddum leik) árið 2000, saddur lífdaga. "Í Brasilíu er hámarksrefsingin 30 ár," sagði Barbosa í síðasta sinn sem hann talaði á opinberum vettvangi. "En síðustu fimmtíu ár hef ég tekið út refsingu fyrir glæp sem ég framdi ekki." Í hlutverki draugabanaAlcides Ghiggia, sem skoraði sigurmarkið í leiknum 1950, var viðstaddur þegar dregið var í riðla fyrir HM 2014.Vísir/AFPPelé var níu ára þegar leikurinn örlagaríki gegn Úrúgvæ fór fram. Eftir leikinn sá Pelé föður sinn fella tár í fyrsta sinn og lofaði að einn daginn myndi hann vinna HM fyrir hann. Framherjinn stóð við loforðið og gott betur. En þrátt fyrir að Brasilía hafi unnið þrjá heimsmeistaratitla með Pelé innanborðs og tvo til viðbótar hefur það ekki dugað til að græða sárin frá 1950 að fullu. Nú er hins vegar möguleiki. Eins og rithöfundurinn Alex Bellos hefur bent á er aðeins ein leið í boði fyrir Brasilíu til að kveða drauginn frá 1950 niður: að vinna úrslitaleik HM þann 13. júlí 2014, á Maracanã, þar sem stórslysið átti sér stað fyrir 64 árum.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Enski boltinn Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Enski boltinn Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Íslenski boltinn Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Golf Fleiri fréttir „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Segir að HM félagsliða verði stærri en Meistaradeildin Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Toone með sögulega fullkomna tölfræði „Það var engin taktík“ Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Sjáðu öll tíu mörk Messi í nýjasta metinu hans Árni farinn frá Fylki Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Skoraði sigurmark gegn Manchester United og er nú kominn til Barcelona „Mikið undir fyrir bæði lið“ Skoraði fjögur í fyrri hálfleik en öll voru dæmd af Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Ætla að spila HM-leikina meira innanhúss næsta sumar Tölfræðin á EM: Íslensku stelpurnar gáfu flestar sendingar á Cecilíu markvörð FHL bætir tveimur bandarískum við hópinn Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fékk gamlan mótherja sinn til að gráta af gleði Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Sjáðu hvernig FH rassskellti KA-menn í Krikanum í gær Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Sjá meira