Aron með þrjár neglur í stórsigri Kiel | Myndbönd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2014 20:14 Aron var flottur í kvöld. Vísir/Getty
Aron Pálmarsson skoraði þrjú glæsileg mörk þegar Kiel hafði betur gegn Hamburg, 29-19, í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Sigurinn var öruggur eins og tölurnar bera með sér en mörk Alfreðs má sjá í myndböndunum hér fyrir neðan. Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar, er á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með 34 stig og er með tveggja stiga forystu á Rhein-Neckar Löwen, sem á þó leik til góða.Sjá einnig: Frábær viðbrögð Alfreðs við glæsimarki Arons Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, vann loksins sigur í deildinni eftir fjóra tapleiki í röð. Refirnir frá þýsku höfuðborginni höfðu tapað öllum leikjum sínum í desember en höfðu betur gegn Göppingen á heimavelli í kvöld, 24-22. Göppingen var þó skrefi framar framan af leiknum en Füchse Berlin jafnaði metin í stöðunni 20-20 þegar níu mínútur voru til leiksloka og tóku þó af skarið. Magdeburg, lið Geirs Sveinssonar, vann Bergischer HC á heimavelli, 38-32. Björgvin Páll Gústavsson varði fimm skot í marki síðarnefnda liðsins en Arnór Gunnarsson var markahæsti leikmaður Bergischer HC með níu mörk. Hannover-Burgdorf vann svo Bietigheim, 28-24, á útivelli. Rúnar Kárason var ekki á meðal markaskorara liðsins að þessu sinni. Magdeburg er í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig, Füchse Berlin í því níunda með 20 og Hannover-Burgdorf í ellefta sæti með nítján stig.
Handbolti Mest lesið Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira