Ævintýri íslenskra au-pair-stúlkna Baldvin Þormóðsson skrifar 30. apríl 2014 09:35 Vigdís Perla Maack, Bergrún Mist Jóhannesdóttir og Lóa Björk Björnsdóttir. myndir/aðsendar
Hið eftirsóknarverða starf au-pair er margþætt en vanalega býr sá sem því gegnir á heimili fjölskyldu og sér um börnin og sinnir heimilisstörfum. Blaðamaður náði tali af þremur ungum stúlkum sem eiga það tvennt sameiginlegt að hafa klárað framhaldsskóla í fyrra og starfa sem au-pair í dag. Þó er engin í sömu stórborginni. Vigdís Perla Maack.mynd/aðsendHeldur lærdómsbók í Berlín „Mig hefur alltaf langað til þess að búa í útlöndum og þegar kona sem ég vann með var að flytja til Berlínar þá greip ég bara tækifærið og spurði hvort ég mætti ekki koma með að passa börnin,“ segir Vigdís Perla Maack, starfandi au-pair í Berlín. „Ég er að passa tvo yndislega krakka; fjögurra ára stelpu og sex ára strák,“ segir Vigdís. „Ég vinn þrjá til fjóra daga í viku en annars er ég bara að njóta mín og hafa það fínt.“ Vigdís hefur sitt eigið herbergi og baðherbergi í íbúðinni en hún segist heyra það að hún hafi það óvenjugott miðað við au-pair. „Maður hefur heyrt hryllingssögur af sumum fjölskyldum,“ segir Vigdís. „Vinkona mín lenti í því að þurfa að skipta um fjölskyldu þegar hún fór í gegnum svona au-pair-skráningu. Heimilislífið var eitthvað skrítið þar sem hún var.“ Vigdísi líður hins vegar rosalega vel í Berlín. „Mig langaði að prófa að standa aðeins á eigin fótum og læra að vera ég sjálf. Ég held að það sé mjög sniðugt að fara frá sínu venjulega umhverfi og vera í borg þar sem maður þekkir ekki alla,“ segir Vigdís. „Það er svo þægilegt að geta farið í lestina og þurfa ekki að hitta einhvern sem maður þekkir og eiga í endalausu spjalli við kunningja. Maður getur bara sungið með tónlistinni í heyrnartólunum,“ segir Vigdís og hlær.Kynntist manni sem talaði íslensku Vigdís Perla hefur lent í hinum ýmsu ævintýrum í Berlín en eitt þeirra var þegar hún var í heimsókn hjá vinkonu sinni, Álfheiði Erlu, sem stundar tónlistarnám í Berlín. „Við elduðum góðan mat og drukkum rauðvín en það var partí í íbúðinni á móti þannig að við bönkuðum upp á og fengum að vera með,“ segir Vigdís. Hún kynntist mörgum Berlínarbúum þetta kvöld, meðal annars rúmlega þrítugum manni sem kunni íslensku. „Hann hafði átt íslenskan pennavin síðan hann var ellefu ára. Hann kom bara upp að okkur og talaði bara fína íslensku,“ segir Vigdís, sem átti langt spjall við manninn sem hafði komið til Íslands til þess að hitta pennavininn. Vigdís Perla mælir með au-pair reynslunni fyrir alla þá sem langar til þess að breyta til en langar ekki til þess að stökkva alveg ofan í djúpu laugina. „Ég mæli líka með því, til þess að gera sem mest úr reynslunni, að halda ekki dagbók heldur lærdómsbók,“ segir Vigdís sem las fyrir blaðamann nokkur atriði sem hún er búin að læra í Berlín. „Ekki fara í lest þó að hún sé komin. Vertu viss um að þetta sé þín lest. Það er oft skemmtilegra að skoða í matarbúð en að skoða í fatabúð. Íslensk tónlist er betri í útlöndum. Skemmtileg rör fá börn til þess að drekka meira vatn.“Bergrún Mist Jóhannesdóttir.mynd/aðsendElskar hjólamenningu Kaupmannahafnar „Þetta var eiginlega frekar mikil skyndiákvörðun sem kom upp í svartasta skammdeginu í janúar,“ segir Bergrún Mist Jóhannesdóttir, starfandi au-pair í Kaupmannahöfn um ákvörðun sína að fara út. „Flestir vinir mínir voru annaðhvort í háskóla eða að fara í ferðalag um heiminn. Mér leist ekki á blikuna og ákvað að sjá hvað væri í boði fyrir mig með stuttum fyrirvara og kostaði ekki mikið.“ Bergrún hafði aldrei áður hugsað um að gerast au-pair þegar hún tók ákvörðunina. „Ég þekkti þó til nokkurra sem höfðu farið út og haft mjög gaman af þannig að þegar útþráin sagði til sín þá fannst mér þetta sniðug hugmynd,“ segir Bergrún sem komst nánast strax í samband við móður úti og ákvað að grípa tækifærið. „Fjölskyldan er afskaplega indæl og skemmtileg. Hún samanstendur af einstæðri móður og tveimur stelpum sem eru átta og tólf ára, en þær eru báðar ættleiddar frá munaðarleysingjahælum í Kína,“ segir Bergún. „Stelpurnar eru á fullu í ballett og leiklist í Konunglega leikhúsinu og fullt af fjöri í kringum þær.“Ávaxtamarkaðir á hverju horni Bergrún segist kunna mjög vel við sig í Kaupmannahöfn. „Ég elska hjólamenninguna, garðana, bryggjurnar, byggingarnar og ávaxtamarkaðina sem eru á hverju horni. Það eina er hvað borgin er fáránlega dýr, maður er ekkert úti að borða og í bíó alla daga. En bjórinn og fötin eru ódýr,“ segir Bergrún og hlær. „Annars finnst mér rosalega gott að vera hér og er spennt fyrir komandi vikum með hlýrra veðri.“ Aðspurð hvort hún hafi verið stressuð að flytja út í fyrsta sinn segist Bergrún hafa tekið breytingunum með miklu jafnaðargeði. „Auðvitað fær maður smá kitl í magann að hitta fjölskylduna fyrst og þurfa að rata um nýja borg og svona,“ segir Bergrún. „Svo er ég líka bara í Kaupmannahöfn sem þýðir að ég get alltaf hoppað upp í lest á Kastrup og flogið heim ef eitthvað kemur upp á og ég hef það alltaf á bak við eyrað.“ Bergrún hefur eignast þó nokkrar vinkonur úti og margar af íslensku vinkonum hennar búa í Kaupmannahöfn. „Það gerir oft hlutina auðveldari svo maður verður ekki einmana. Ég held að þetta væri erfiðara ferli ef ég væri í landi þar sem menningin væri mjög frábrugðin og maður þekkti örfáa,“ segir Bergún, sem mælir með reynslunni fyrir alla sem hafa hug á að gerast au-pair. „Þetta er sniðug og ódýr leið til að fá að ferðast smá, búa í öðru landi, kynnast fólki og hafa gaman.“Lóa Björk Björnsdóttir.mynd/aðsendFinnst kaffið dýrt og vont í New York „Þegar mér bauðst þetta þá var ég ekki með nein fastmótuð plön. Var einungis ákveðin í því að taka mér frí frá skóla eftir ótrúlega löng og þreytandi stúdentspróf,“ segir Lóa Björk Björnsdóttir, starfandi au-pair í New York. „Ég vildi upplifa eitthvað nýtt og ögra mér. Mæta ferskari í háskólann með aðeins betri hugmynd um það sem ég vildi læra þar. Auðvitað er ég engu nær.“ Lóu Björk langaði hins vegar aldrei til þess að gerast au-pair. „Ég hafði heyrt nógu mikið af reynslusögum. Auðvitað fannst sumum stelpum þetta yndislegt en aðrar upplifðu frekar erfiða hluti. Þá er ég að meina til dæmis mun meiri vinnu en um var samið og erfiðleika í samskiptum við fjölskylduna,“ segir Lóa, sem heillaðist þó af því að geta ferðast án þess að vera skuldbundin í starfi sem henni þætti leiðinlegt. Aðspurð hvort það hafi verið stressandi að flytja til stórborgarinnar segist Lóa hafa sennilega upplifað það öðruvísi en aðrir í hennar stöðu sem búa hjá ókunnugum. „Ég bý hjá frænku minni og það auðveldar þetta mjög mikið. Ég hef ekki beint fengið brjálæðislega heimþrá en stundum tárast ég þegar ég horfi á Gilmore Girls því að við mamma horfðum á það saman,“ segir Lóa. „Fjölskyldan er samt frábær. Ég er enn þá að venjast því að búa inni á öðru fólki. Maður verður svo skelfilega meðvitaður um tilvist sína, óhreinindi sem maður skilur eftir sig, sturtuvenjur sínar og hvað maður borðar mikið,“ segir Lóa. „Ég fel fyrir þeim hvað ég borða mikið nammi.“Þarf ekki alltaf að fara út Það sem Lóu finnst þó vera pirrandi við að búa í New York er að hún finnur fyrir ákveðnu viðhorfi fólks um að hún eigi alltaf að vera að gera eitthvað nýtt og spennandi. „Ég nenni ekki alltaf að fara út, sérstaklega þar sem þessi vetur var kaldur og ónotalegur,“ segir Lóa. „Að búa einn í nýrri borg er ekkert endilega alltaf stuð ef maður hefur ekki bestu vini sína til þess að njóta þess með sér. Ég sakna þess stundum að geta ekki farið í bjór á Kalda eða kaffi á Kaffitár,“ segir Lóa og bætir því við að þó það séu hundrað sinnum fleiri kaffihús í New York þá bjóði flest þeirra upp á mjög vont og mjög dýrt kaffi. „Eitt sem er vissulega sérstakt við New York er að það er alltaf eitthvað að gerast hérna. Allt sem manni dettur í hug að gera er í boði. Valmöguleikarnir eru endalausir,“ segir Lóa. Lóa Björk mælir samt með reynslunni fyrir áhugasama en bætir því við að krakkar þurfi að passa sig að láta ekki fara illa með sig. „Ekki láta bjóða ykkur hvað sem er,“ segir Lóa. „Annars vil ég ítreka klisjuna að taka hlutunum með opnum hug og líta á allt sem reynslu.“
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á sér Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ Sjá meira