
Skóflustunga tekin að kísilverksmiðju í Helguvík

Framkvæmdir við byggingu fyrsta áfanga verksmiðjunnar munu nú hefjast en jarðvegsframkvæmdir eru þegar hafnar á svæðinu. Verksmiðjuhúsið verður 41 metra hátt og um 5.000 fermetrar að stærð. Þar inni verður stór ljósbogaofn sem framleiðir kísilmálminn. Gert er ráð fyrir að starfsemi verksmiðjunnar hefjist á fyrri hluta ársins 2016.
,,Allir lykilsamningar verkefnisins eru í höfn. Verkefnið er afar umfangsmikið og mun á uppbyggingartíma skapa allt að 300 störf og um 60 störf eftir að verksmiðjan hefur starfsemi. United Silicon verður mikilvæg stoð í íslensku atvinnulífi sem skapar þjóðarbúinu auknar gjaldeyristekjur til framtíðar,“ segir Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon í tilkynningu frá félaginu.
Áætlað er að framleiðsla hefjist á vormánuðum árið 2016 og nemi 21.300 tonnum á ári. Stefnt er að því að reisa alls fjóra ofna í verksmiðjunni ef næg orka fæst til þess og þá verður verksmiðjan stærsta kísilverksmiðja í heimi.
,,Það er búið að tryggja raforku fyrir einn ofn en það eru 35 megavött. Miðað við fjóra ofna þarf kísilverksmiðjan 140 megavött Við erum búnir að sækja um og fá starfsleyfi fyrir þrjá ofna í viðbót. Verksmiðjan er hönnuð með þessa stækkun í huga. Miðað við fjóra ofna verður framleiðslugetan 85.000 tonn á ári. Við stefnum að því að ná þessari framleiðslu á tíu árum,“ segir Magnús.
Heildarfjárfestingin, miðað við fjóra ofna í rekstri, er um 35 milljarðar króna. Fjármögnun verkefnisins er samvinna danskra og hollenskra fjárfesta frá Fondel Group, en lánsfjármögnun verkefnisins og ráðgjöf er í höndum Arion banka.
Tengdar fréttir

Átta verkefni í Helguvík á borðinu
Reykjanesbær undirritaði nýverið viljayfirlýsingar við þrjú fyrirtæki sem hafa óskað eftir lóð í Helguvík. Tvö vilja framleiða vörur fyrir bílaiðnað og það þriðja vinna kísil.

Tvö kísilver að komast í höfn
Vonir standa til að smíði kísilvera í Helguvík og á Húsavík verði staðfest innan tveggja vikna með því að öllum fyrirvörum vegna samninga verði aflétt.

Koma kísilvera þrengir kosti Helguvíkurálvers
Nýgerðir samningar og viljayfirlýsingar um allt að fjögur kísilver auka þrýsting á fleiri nýjar virkjanir, sérstaklega ef jafnframt á að mæta óskum Norðuráls vegna álvers í Helguvík.

"Erum að spyrna okkur hressilega frá botninum“
Samningar um tvö stórfyrirtæki í kísiliðnaði voru undirritaðir í dag og eru nú horfur á að fjögur ný kísilver rísi á Íslandi á næstu þremur árum.

Hefja byggingarframkvæmdir kísilvers í beinu framahaldi af frágangi lóðar
Fyrirtækið United silicon vinnur nú að því að undirbúalóð sína í Helguvík fyrir byggingarframkvæmdir kísilvers en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ.

Samið um raforkuflutninga fyrir kísilver í Helguvík
Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag við United Silicon hf. um raforkuflutninga vegna kísilvers í Helguvík.

Fyrirvörum vegna kísilvers í Helguvík aflétt
Á bilinu tvö til þrjúhundruð manns munu koma að byggingu verksmiðjunnar

Fjárfestingarsamningur vegna kísilvers í Helguvík undirritaður
Í dag undirritaði Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fjárfestingar-samning við United Silicon hf. vegna fyrirhugaðs kísilvers félagsins í Helguvík

Misheppnuð ævintýri Silicor Materials
Stjórnvöld í Ohio og Mississippi hafa farið flatt á viðskiptum sínum við fyrirtækið sem hyggst reisa sólarkísilverksmiðju fyrir 77 milljarða króna á Grundartanga.

Mega framleiða hundrað þúsund tonn á ári
Umhverfisstofnun hefur veitt starfsleyfi fyrir rekstur kísilverksmiðju í Helguvík.

Framkvæmdir við kísilver í Helguvík hefjast á morgun
Framkvæmdir við kísilmálmverksmiðju United Silicon hefjast í Helguvík á morgun en allir lykilsamningar um verkefnið eru nú í höfn.

Tveir raforkusölusamningar í byrjun viku
Landsvirkjun hefur gert raforkusölusamninga við fyrirtæki sem hyggjast byggja hér kísilmálmverksmiðjur. Gerjun á heimsmarkaði skýrir hraða þróun. Skýrist fyrir lok maí hvort áform í Helguvík ganga eftir.