Viðskipti innlent

Samið um raforkuflutninga fyrir kísilver í Helguvík

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Joseph Dignam, stjórnarmaður hjá United Silicon og Auðunn Helgason, stjórnarmaður hjá United Silikon.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Joseph Dignam, stjórnarmaður hjá United Silicon og Auðunn Helgason, stjórnarmaður hjá United Silikon.

Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag við United Silicon hf. um raforkuflutninga vegna kísilvers í Helguvík.



Áætluð aflþörf verksmiðjunnar er 35 megavött (MW) og miðast samkomulagið við að starfsemi hennar hefjist í ársbyrjun 2016 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsneti.

United Silicon hf. er nýtt félag, stofnað af hópi aðila í evrópska kísilmálmiðnaðinum, sem á frumkvæði að því að setja upp nýja kísilmálmverksmiðju hérlendis til að mæta vaxandi eftirspurn viðskiptavina sinna í Evrópu. Félagið hefur undirbúið byggingu kísilversins í Helguvík og keypti þróunarfélagið Stakksbraut 9 ehf. sem á lóðina í Helguvík. Umhverfismat hefur þegar verið unnið fyrir verkefnið og var það samþykkt af Skipulagsstofnun í maí 2013.

Samkomulag United Silikon við Landsnet miðast við að orkuafhending hefjist í febrúar árið 2016 og að starfsemin verði komin á fullt tveimur mánuðum síðar. Skal Landsnet tryggja orkuflutninga til kísilversins með tengingu við meginflutningskerfið á Fitjum á Reykjanesi. Undirbúningur og hönnun vegna tengingar kísilversins í Helguvík við flutningskerfið hefst hjá Landsneti í ár og er áætlað að framkvæmdir byrji strax á næsta ári.

„Það sem öðru fremur gerir okkur kleift að bregðast við beiðni United Silikon með svo stuttum fyrirvara er sú staðreynd að við höfum unnið að undirbúningi tengingar iðnaðarsvæðisins í Helguvík á undanförnum árum. Nú hyllir einnig undir að framkvæmdir hefjist við Suðurnesjalínu 2, sem gjörbreytir afhendingaröryggi raforku á Reykjanesi,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.

„Samkomulagið við Landsnet er mikilvægur áfangi í áformum okkar um að byggja kísilver í Helguvík. Gangi þau öll eftir verður starfsemin komin á fullan skrið í apríl 2016. Framleidd verða 20 þúsund tonn af kísilmálmi og því fylgja um 65 framtíðarstörf á Reykjanesi, að ótöldum þeim störfum sem verða til vegna kaupa á þjónustu og orku,“ segir Joseph Dignam, stjórnarmaður hjá United Silicon.

Áætlaður kostnaður við tengingu kísilvers United Silicon við meginflutningskerfi Landsnets hljóðar upp á um einn milljarð króna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×