Brennimerktar vinkonur fyrir lífstíð Marín Manda skrifar 21. mars 2014 11:00 Ása, Katrína og Alexandra. Fréttabladid/Stefán Karlsson
Katrína Mogensen, Alexandra Baldursdóttir og Ása Dýradóttir eru konurnar í hljómsveitinni Mammút en hana skipa einnig Arnar Pétursson og Andri Bjartur Jakobsson. Bandið hefur verið áberandi undanfarin misseri og hlaut þrenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir bestu plötuna, besta lagið og besta plötuumslagið. Lífið ræddi við stöllurnar um listina að lifa sem tónlistarfólk. Öldugatan er snævi þakin þennan morguninn og kuldinn bítur blaðamann þar til hann skottast inn um dyrnar á hvítu húsi sem augljóslega ber mikla sögu. Katrína Mogensen, söngkona í Mammút, heilsar frammi á gangi og afsakar seinaganginn enda nýrisin úr rekkju. „Þú verður að afsaka en það var bara svo gaman hjá okkur í gær og mikið partí. Það voru mjög miklir töfrar og orka í Eldborg í gær og ótrúlega fallegir tónleikar hjá öllum,“ segir Katrína um tónleikana Stopp – Gætum garðsins! sem haldnir voru í þágu íslensku náttúrunnar kvöldið áður. Dyrabjallan hringir og upp tröppurnar kemur Alexandra Baldursdóttir, gítarleikari bandsins. Rás 1 hljómar um risíbúðina úr gömlu Bush-útvarpi sem stendur á borði ásamt verðlaunastyttu sem Mammút hlaut á Íslensku tónlistarverðlaununum helgina áður. Katrína býður upp á ilmandi te með hunangi sem við sötrum á meðan við spjöllum um ævintýri hljómsveitarinnar sem hófst þegar Mammút sigraði á Músíktilraunum árið 2004 en þá voru hljómsveitarmeðlimirnir einungis 14 ára.„Í gær voru þrjár Músíktilraunahljómsveitir að spila á tónleikunum svo það er svolítið skemmtilegt að sjá þessa þróun,“ segir Katrína. „Já, þegar við sigruðum á sínum tíma vorum við nýbyrjuð svo þetta var mikil hvatning fyrir okkur til að halda áfram og gera betur því það er svo mikilvægt að vita að fólki líki við það sem þú ert að gera,“ bætir Alexandra við. Stúlkurnar rifja upp með nostalgíu þennan tíma þegar þær voru táningar. „Við vorum svo brothætt þarna enda vorum við einstaklega ung, ekki nema 14 ára. Eldra fólk veit eflaust betur hvað það er að gera en við vorum bara þarna vinirnir að spila.“ Síðan hefur runnið mikið vatn til sjávar og meðlimirnir fimm hafa fengið þó nokkurn meðbyr undanfarin misseri. Mammút hefur gefið út þrjár plötur, en fyrir þriðju breiðskífuna, Komdu til mín svarta systir, fengu þau Íslensku tónlistarverðlaunin og einnig plötuumslagið, sem Katrína hannaði með myndlistarkonunni Sunnevu Weisshappel, og lagið Salt sem hljómar talsvert á öldum ljósvakans.Katrína Mogensen-Söngkona-24 áraMammút stór hluti af lífinu „Það myndast að sjálfsögðu spenna inni á milli þegar það eru fimm ólíkir einstaklingar í bandinu en þegar við komum öll saman og spilum þá fæ ég þessa góðu áminningu um af hverju við erum að þessu,“ segir Katrína. „Já, sammála, enda hefur aldrei komið upp sú tilfinning að við höfum viljað hætta samstarfi enda er hljómsveitin stór partur af lífi okkar og búin að vera ansi lengi – hún er bara hluti af manni. Ef einn meðlimur skreppur til útlanda þá mun sá aðili fyrst láta hina meðlimina vita áður en annað er aðhafst,“ segir Alexandra. Katrína segist upplifa þetta örlítið eins og að vera í platónsku sambandi með fimm einstaklingum – eins konar fjölkvæni. „Stefnur og strauma höfum við í raun aldrei almennilega rætt eða hvernig tónlist við viljum búa til. Við höfum alltaf bara hist og búið til tónlist saman. Það er mismunandi hverjir koma með hvaða grunna eða takta en svo leikum við okkur öll saman að þessu.“ Mammút skipa þau Alexandra Baldursdóttir sem spilar á gítar ásamt Arnari Péturssyni, Vilborg Ása Dýradóttir sem er bassaleikari og Andri Bjartur Jakobsson trommari. „Ég kann að fikra mig áfram á hljóðfærum en þau eru öll mjög góðir hljóðfæraleikarar. Í upphafi vildi ég í raun alltaf vera bassaleikarinn en það var víst ákveðið að ég skyldi syngja,“ segir Katrína og brosir.Ása, Katrína. og Alexandra.Rödd hennar þykir einstök og hefur víða verið lofuð upp í hástert. En hvað finnst henni um samlíkingar við sjálfa Björk? Hún hikar örlítið áður en hún svarar. „Ég hef mikið hlustað á Björk, sérstaklega þegar ég var unglingur, en ég hef aldrei lagt upp úr því að líkja eftir henni. Þetta er hrós en á sama tíma vill maður ekki láta líkja sér við neinn. Ég veit að ég er undir áhrifum frá henni og syng oft mjög hátt og beiti röddinni mikið. Það er þá kannski borðleggjandi og eðlilegt að fólk taki þetta þangað.“ Meðlimir bandsins eru allir á aldrinum 24-25 ára og sinna námi eða vinnu með hljómsveitarlífinu. Stúlkurnar völdu listabrautina en Alexandra er að læra grafíska hönnun í Listaháskólanum. Ása er með BA-gráðu í myndlist úr LHÍ og starfar sem rekstrarstjóri á kaffihúsinu Stofunni við Aðalstræti og Katrína er að útskrifast úr myndlist frá LHÍ í vor.Alexandra Baldursdóttir-Gítarleikari-Aldur 24 ára„Það er eiginlega ekki hægt að lifa á tónlistinni einni og sér. Maður þarf að vera svolítið mikið stór eins og Bubbi,“ segir Katrína. „Þetta er afburða gamaldags hugsunarháttur hér á Íslandi og við erum mjög eftir á. Þessi tugga að listamenn þurfi endalaust að svara fyrir sig og vera í einhverri vörn fyrir að vera listamenn getur orðið örlítið þreytandi. Kannski er það vegna þess að listin skilar ekki augljósum peningum inn í þjóðarbúið. Tónlist og list almennt skilar þó af sér fullt af peningi fyrir efnahaginn,“ segir hún. Alexandra tekur undir. „Já, og markaðssetningu sem aflar svo tekna eins og fram kom á Íslensku tónlistarhátíðinni. Það var verið að sýna staðreyndir um íslenska tónlist. Þá kom meðal annars fram að Of Monsters and Men væri gúggluð jafn oft og Ísland. Það er því einkennilegt að vera með ríkisstjórn í dag sem sparkar okkur aftur í tímann, því áður vorum við á góðri leið. Það hlýtur að koma að því að útlendingar upplifi Ísland sem vörusvik.“Hljómsveitin Mammút á tónleikum í Gamla BíóiMynd/Matthew EismanÞað er augljóst að þetta er þeim mikilvægt málefni sem þær eru tilbúnar að berjast fyrir. „Það er líka búið að kippa í burtu öllum helstu tónleikastöðum miðbæjarins. Það virðist bara eiga að halda flesta viðburði í Hörpunni í dag en Harpan er ekki svarið. Það hentar ekki öllum að spila þar. Til að efla efnahaginn var byggð upp þessi ímynd um orkuna, álfana og grósku í tónlist, myndlist og fleiru sem er alls ekki vitlaus hugmynd í kreppunni – en svo var ekkert verið að hlúa að listinni. Allt var blóðmjólkað en um leið og túristarnir fóru að birtast var listinni ýtt til hliðar. Maður hefur í raun engar áhyggjur af grasrótinni því hún vex bara annars staðar en allt sem var í boði í miðbænum var stöðvað, eins og Nasa og Hjartagarðurinn. Nú eru í boði Gaukur á Stöng, kjallarinn á Ellefunni og litla sviðið á Harlem eða þá Harpan. Þessir staðir eru algjörar andstæður við Hörpuna, bara svart og hvítt, og okkar aðdáendur eru ekki mikið að koma í Hörpuna,“ segir Katrína. Mikil viðurkenning Talið berst að Íslensku tónlistarverðlaununum sem fram fóru fyrir skömmu en Mammút stóð uppi sem sigurvegari í þremur flokkum fyrir plötu ársins, lag ársins og plötuumslag ársins. „Það var geðveikt að fá þessi verðlaun en þetta var pínulítið ógeðslegt að sitja þarna,“ segir Katrína hlæjandi. „Ég held að við höfum verið mjög róleg yfir þessu þangað til við löbbuðum inn í Hörpuna. Þá breyttist andrúmsloftið,“ segir Alexandra og Katrína bætir við: „Já, við höfum náttúrulega aldrei verið sett í svona aðstöðu áður og við upplifðum mikinn keppnisanda sem við vorum alls ekki að hugsa um fyrir kvöldið. Við vildum bara líta á þessi verðlaun sem viðurkenningu en þegar við vorum komin inn í salinn þá langaði mann bara að vinna allt, sem er svolítið klikkað – að hugsa til þess að það sé keppni í tónlist en auðvitað gengur þetta út á viðurkenninguna. Daginn eftir vorum við svo búin að ná okkur niður.“ Ása Dýradóttir-Bassaleikari-25 vetraForvitnin kitlar blaðamanninn sem spyr nánar út í verðlaunin. „Við fengum stóran bikar og stórt umslag með. Við vorum svo spennt að vita hvað væri í umslaginu, en þetta var handskrifað viðurkenningarskjal, skrifað með kúlupenna.“Vináttan og innblásturinn Samræðurnar verða dýpri þegar blaðamaður spyr hvert þær sæki innblástur. „Ég fylgist með mjög miklu og þá sérstaklega íslenskri tónlist en ég fylgist einnig með því sem er að gerast erlendis í poppheiminum en það er þá forvitnin sem leiðir mig áfram. Ég verð að vita hvað er að gerast í tónlistinni í kringum mig og ómeðvitað fær maður innblástur. Við höfum oft velt spurningunni fyrir okkur, hvað það sé sem geri Mammút að Mammút og því verður svarað með því að við erum öll ofboðslega góðir vinir, þrátt fyrir að vera öll mjög ólík. Við erum farin að þekkja inn á hvort annað svo vel og náum að tengja mismunandi hljóma saman. Ég er ekki viss um að við værum vinir ef við hefðum ekki Mammút sem tengir okkur,“ segir Alexandra og hlær. Katrína kinkar kolli. „Já, við höfum öll ólíkan tónlistarsmekk og erum alls ekki sammála um hvað góð tónlist sé. Ætli ég fái ekki mestan innblástur úr öllum útvarpsþáttunum á RÚV og tónlistinni þaðan. Þar eru þættir um alls konar skrítna heimstónlist og sögu,“ segir Katrína.Brennimerkt fyrir lífstíð „Við höfum alltaf verið að stefna eitthvert en planið er bara að halda áfram. Við höfum spilað mikið í Evrópu, Þýskalandi og Noregi, og þá vorum við sjálf á bíl að keyra á milli. „Já, við enduðum einn Berlínartúr á því að fá okkur öll eins húðflúr,“ segir Alexandra og réttir fram handlegginn með fimm punktum á. „Við vorum orðin svo súr að vera saman í mánuð og vorum farin að deila nánast öllu. Nærfötum, tannburstum og fleiru. Við vorum einhvern veginn hvert ofan í öðru alla daga og nætur svo þetta húðflúr var bara næsta skref. Nú er búið að brennimerkja okkur öll fyrir lífstíð. Strákarnir eru einstaklega ánægðir með þetta þegar þeir fá sér í glas, þá hefur þetta svo mikið tilfinningagildi að við séum öll með eins húðflúr,“ segir hún og brosir. „Ég held meira að segja að við Arnar höfum notað sama tannburstann í heilan mánuð svo þessi húðflúr voru ekki mikið vandamál,“ segir Katrína og þær hlæja í kór.
Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna Matur Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Lífið Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Lífið Fleiri fréttir Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Sjá meira