Björguðu óttaslegnum flóttamönnum um borð í þyrlu Kolbeinn Tumi Daðason og Atli Ísleifsson skrifar 13. ágúst 2014 15:32 Íraksher hefur dreift hjálpargögnum til nauðstaddra og bjargað hluta þeirra inn á svæði sem er undir stjórn Kúrda. MYND/CNN
Fréttamaður og myndatökumaður CNN slógust í för með írakska flughernum fyrr í vikunni. Hermennirnir fluttu hjálpargögn á borð við vatn, matvæli, bleyjur og fleira í þyrlu til jasída sem flúið hafa á Sinjar-fjall undan ofsóknum íslamista í norðurhluta Íraks. Í innslagi CNN sést hvernig hjálpargögnum er varpað úr úr þyrlunni áður en henni er lent og hluti fólksins er bjargað um borð. Þurfti þó að vísa fjölda fólks frá þar sem þyrlan gat ekki borið fleiri. Hersveitir Kúrda eiga nú í átökum við vígamenn IS-samtakanna í norðurhluta Íraks. Þúsundir jasída hafast við á Sinjar-fjalli, en jasídar og aðrir trúarlegir minnihlutahópar hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna framgöngu IS-liða.Í frétt BBC kemur fram að David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segi fjölþjóðlega aðgerð nú vera í bígerð um að bjarga þeim jasídum sem fastir eru í fjöllunum og komast hvorki lönd né strönd. Íraksher hefur þegar dreift hjálpargögnum til nauðstaddra og bjargað hluta þeirra inn á svæði sem er undir stjórn Kúrda. Francois Hollande Frakklandsforseti tilkynnti fyrr í dag að franski herinn hugðist koma vopnum í hendur hersveita Kúrda. Bandaríkjaher hefur gert slíkt hið sama og tilkynnti Bandaríkjastjórn að hún hugðist senda 130 sérfræðinga hersins til að aðstoða hersveitir Kúrda í baráttunni gegn liðsmönnum IS.
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira