Stytting framhaldsskólans Baldvin Ringsted skrifar 22. desember 2014 07:00 Pawel Bartoszek skrifaði nýlega pistil í Fréttablaðið um styttingu framhaldsskólans. Þar segir hann: „Það verður að skoða menntakerfið í heild sinni.“ En það gerir hann ekki. Hann virðist sammála menntamálaráðherra: allt er gott í útlöndum og aumt á Íslandi. Pawel segir: „Í tveggja ára gamalli skýrslu menntamálaráðuneytisins kemur fram að einungis 44% íslenskra menntaskólanema ljúka námi á tilskildum tíma. Annars staðar á Norðurlöndunum er hlutfallið yfir 70%.“ Að ljúka á tilskildum tíma táknar líklega að nemandinn sé 20 ára þegar hann útskrifast sem stúdent á Íslandi. Í viðmiðunarlöndunum eru nemendur settir í fullorðinsfræðslu ef þeir ná ekki að ljúka á tilskildum tíma, fá kannski eitt ár aukalega. Nemendur í framhaldsskólum viðmiðunarlandanna fá skólastyrk, fríar bækur o.fl. Það eru til ungmenni á Íslandi sem hafa ekki ráð á skólagöngu og þurfa að slíta hana í sundur og lengja. Í viðmiðunarlöndunum er líka fjöldi styttri námsbrauta. Til dæmis er meiraprófið inni í framhaldsskólunum en íslenskir meiraprófsbílstjórar eru margir skráðir sem brottfall þar sem þeir hafa gjarnan mátað sig í skóla, fengið fínan undirbúning fyrir meiraprófið en ekki útskrifast. Tugir nemenda ljúka árlega stúdentsprófi samhliða vélstjórnarnámi sem er fimm ár, þeir eru a.m.k. 21 árs og margir eldri því þeir taka gjarnan hlé á námi til að ná sér í reynslu. Fjöldi iðnnema tekur líka stúdentspróf að loknu iðnnámi komnir yfir tvítugt. Enn fremur segir Pawel: „Nám til stúdentsprófs verður að vera jafninnihaldslítið og í Danmörku. Kröfurnar verða að vera jafnlitlar og í Finnlandi. Þessar þjóðir eru reyndar í efstu tveimur sætum þegar kemur að svokallaðri menntunarvísitölu Sameinuðu þjóðanna.“Til eftirbreytni? Finnskur kennari sem var að vinna með mér í verkefni sagði mér að allir útskrifuðust hvort sem þeir fengu 1, 2 eða 3 í einkunn. Sama hvort þeir ná áfanga eða ekki. Í Svíþjóð útskrifast stúdentar þótt þeir nái ekki áföngum. Það segir bara á skírteini að þeir hafi ekki náð fullnægjandi árangri. Er það til eftirbreytni? Pawel segir: „Finnskir nemendur eru í grunnskóla til 16 ára aldurs. Þeir fara síðan í þrjú ár í framhaldsskóla og hefja að jafnaði háskólanám við nítján ára aldur. Danskir nemendur eru í grunnskóla til 16 ára aldurs og fara svo í framhaldskóla. Þeir útskrifast úr framhaldsskóla 19 ára. Sama kerfi er við lýði í Noregi og Svíþjóð.“ Ef við skoðum annað viðmið, hversu margar vikur eða jafnvel klukkustundir eru nemar í skóla til stúdentsprófsins? Skólar í viðmiðunarlöndunum hafa allir lengra skólaár, frá tveimur upp í sjö vikum lengra. Skiptir það ekki máli? Segjum þrjár vikur sinnum 13 ár eða 39 vikur, þá er komið ríflega eitt skólaár í viðbót, árið sem þeim Pawel og ráðherra finnst ofaukið hér heima. Enn ein tilvitnun í Pawel: „Sé litið til þeirra fordæma gæti hugsanlega verið skynsamlegt að fela þær breytingar í móðu ólíkra námsbrauta með valkvæðum hraðbrautum áður en kerfið er samrýmt að nýju með þeim afleiðingum að allir útskrifast ári fyrr.“ Munu allir útskrifast ári fyrr ef námið er stytt um eitt ár? Sókn í framhaldsskóla hefur aukist upp í u.þ.b. 98% af árgangi sem hlýtur að hafa í för með sér mismunandi getu til náms, mismunandi áhuga og námsframvindu. Í minn skóla innritast árlega tugir nemenda sem hafa ekki náð viðmiðum til lágmarksárangurs grunnskólans. Þeir þurfa eitt til tvö ár í hægferðum og upprifjunaráföngum áður en þeir takast á við hefðbundið efni framhaldsskólans. Einnig innritast fjöldi nema sem eru með frábæran árangur úr grunnskóla og ráða léttilega við að ljúka stúdentsprófi á þremur árum og hafa gert það. Í lögum frá 2008 var skólum heimilað að skipuleggja námsbrautir til stúdentsprófs allt að átta önnum en nú vill ráðherra, og Pawel, búa til eina ríkisleið í anda Marteins Mosdal og steypa alla í sama mót. Raunveruleikinn er bara ekki þannig. Ef á að gera eins og hinir þarf að taka allan pakkann, ekki bara tína til það sem kostar ekkert. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Undirbúum börnin fyrir skólann með hjálp gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Enginn skilinn eftir á götunni Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson skrifar Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Sjá meira
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Skoðun Þjórsá í hættu – Hvammsvirkjun og rof á náttúrulegu ástandi árinnar Gunnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald skrifar
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Stúdentar eiga ekki að borga fyrir vanfjármögnun háskólanna Ármann Leifsson,María Björk Stefánsdóttir Skoðun
Ég hef ofurtrú á manneskjunni í forvörnum og öryggi á bæjarhátíðunum Arnrún María Magnúsdóttir Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun